Gagnaversrisa stefnt fyrir 900 milljónir
Framkvæmdir í fullum gangi á lóð Borealis Data Center á Blönduósi. Mikill kippur varð í fjárfestingu í gagnaverum í ár og ekkert lát virðist á vexti fyrirtækjanna sem leiða greinina. mbl.is/Árni Sæberg
Borealis Data Center, sem rekur gagnaver við Blönduós, hefur verið stefnt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur vegna meintra vanefnda á leigusamningi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá stefnanda í málinu. Aðalmeðferð í málinu hófst fyrr í dag.
Félaginu er stefnt af félaginu Adomat & Heidenblut M 1 ehf., sem er í eigu þýskra fjárfesta tengdum CT Cap samstæðunni.
Hafi ekki greitt leigu í tæp fjögur ár
Málið varðar leigusamning frá júní 2022, þar sem Adomat leigði Borealis tæplega 2.000 sérhæfðar tölvur til notkunar í gagnaveri félagsins á Blönduósi. Samkvæmt kröfu Adomat hætti Borealis að greiða mánaðarlega leigu undir lok árs 2022 og hefur síðan hvorki greitt leiguna né afhent búnaðinn.
Stefnufjárhæðin nemur rúmum 6,57 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 900 milljóna króna, auk vaxta
Borealis hefur verið í mikilli sókn að undanförnu. Félagið tók 148 milljóna dala lán snemma árs 2025 og gerði nýverið 12 MW orkusamning við Landsvirkjun til að tvöfalda stærð gagnavers síns við Blönduós.
Í tilkynningu Adomat segir að ilraunir til að leysa deiluna og fá vélbúnaðinn afhentan milli áranna 2023 og 2025 hafi ekki borið árangur vegna þess að Borealis hafi neitað að afhenda vélarnar.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗