Turninn veðsettur fyrir tæpa tuttugu milljarða

Viðskiptablaðinu reiknast svo til að samanlögð upphafleg fjárhæð þeirra fimm tryggingarbréfa sem hvíla nú á hótelturninum nemi 18,5 milljörðum króna. mbl.is/Eyþór

Miklar skuldir hvíla á hótelturninum fræga við Skúlagötu þar sem sautján hæða hótel Radisson Red átti að opna, en þar voru framkvæmdir stöðvaðar, verktökum vísað af byggingarstað og svæðinu lokað í gær.

Fimm dögum áður en framkvæmdir voru stöðvaðar gaf eigandi fasteignarinnar, S26 Hotel ehf., út eins milljarðs króna tryggingarbréf til Arion banka, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins, og hvíla nú fimm tryggingarbréf á turninum í eigu bankans.

Greint var frá því í sumar á vettvangi Morgunblaðsins að turninn væri nær tilbúinn, en vatnstjón sem mun hafa orðið á hinum fullbúnu einingum þess hefur sett strik í reikninginn.

Öllum verktökum við byggingu hótelturnsins við Skúlagötu í Reykjavík var vísað af byggingarstað og honum lokað eftir að viðskiptabanki Rauðsvíkur lokaði fyrir frekari fjárveitingar til verkefnisins. mbl.is/Eyþór

Skuldir meira en tvöfaldast á einu ári

Viðskiptablaðinu reiknast svo til að samanlögð upphafleg fjárhæð þeirra fimm tryggingarbréfa sem hvíla nú á hótelturninum nemi 18,5 milljörðum króna, en áður hefur komið fram að Arion banki sé aðalkröfuhafi framkvæmdarinnar.

Í lok síðasta árs hafi skuldir verkefnisins numið rúmum tíu milljörðum króna, og því aukist mikið frá árslokum 2024 þar sem þær námu 3,8 milljörðum króna.

Til tryggingar framkvæmdaláninu hafi félagið veðsett hótelbygginguna, og samkvæmt ársreikningum hafi lokagjalddagi lánsins verið í desember 2025 en félagið hafi fengið heimild til að framlengja lánið um sex mánuði að tilteknum skilyrðum uppfylltum.

Ekki hefur náðst í forsvarsmenn fyrirtækisins Rauðsvíkur ehf., sem stendur að framkvæmdinni, né forsvarsmenn dótturfélagsins Art-verk, sem er aðalverktaki framkvæmdarinnar. 

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅