Segir ásakanirnar ekki eiga við rök að styðjast
Yfirlögfræðingur Borealis Data Center segir ásakanir félags sem hefur stefnt Borealis fyrir um 900 milljónir króna ekki eiga við rök að styðjast.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bergþóru Halldórsdóttur, yfirlögfræðingi Borealis.
Borealis er stórtækt fyrirtæki á sviði gagnavera en félagið rekur gagnaver við Blönduós og stendur auk þess í umtalsverðri uppbyggingu á svæðinu.
Kröfur Borealis talsvert hærri
Aðalmeðferð hófst í málinu í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur en félagið sem stefnir Borealis heitir Adomat & Heidenblut M 1 ehf. Samkvæmt stefnunni skuldar Borealis félaginu vegna vangoldinna leigugreiðslna fyrir tölvubúnað sem Borealis er með í vörslum sínum.
„Borealis á verulegar kröfur á hendur þeim félögum sem standa að baki málshöfðuninni vegna ógreiddrar þjónustu og eru þær kröfur talsvert hærri en þær kröfur sem Adomat & Heidenblut M 1 ehf. telur sig kunna að eiga á hendur Borealis, séu þær einhverjar,“ segir í tilkynningunni.
Bergþóra segir búnaðinn vera í vörslu Borealis vegna ógreiddra skulda Adomat og sé það í samræmi við skilmála í samningi þeirra á milli.
„Við teljum þær ásakanir sem koma fram í fréttatilkynningu félagsins Adomat & Heidenblut M 1 ehf. ekki eiga við rök að styðjast og tilgangur hennar sé að reyna að valda félaginu áframhaldandi tjóni.“
Mun ekki hafa áhrif á Borealis
Eins og áður segir hófst aðalmeðferð í málinu í dag og er niðurstöðu að vænta á næstu vikum.
„Niðurstaða málsins mun ekki hafa áhrif á rekstur Borealis eða áform þess um áframhaldandi uppbyggingu.“
Bæði Skatturinn og KPMG Law hafa gert kröfu um að bú Adomat & Heidenblut M 1 verði tekið til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotakrafan verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í næsta mánuði.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗