Reitir finna fyrir kólnun í hagkerfinu

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.

Hagnaður fasteignafélagsins Reita nam tæpum tveimur milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við tæpa 5,8 milljarða á sama tímabili í fyrra. Hagnaðurinn dróst því saman um tæp 66% milli ára, þrátt fyrir auknar leigutekjur og meiri rekstrarhagnað fyrir matsbreytingu. Forstjóri Reita segir félagið finna fyrir kólnun í hagkerfinu. 

Þetta kemur fram í afkomutilkynningu félagsins sem birt var í gær.

Leigutekjur námu tæpum 14,9 milljörðum króna og jukust um 11,1% milli ára, eða 5,8% umfram verðlag. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nam tæpum 9,9 milljörðum króna og jókst um 12,5%.

Hrein fjármagnsgjöld hækkuðu hins vegar um 48,5%, úr tæpum 8,3 milljörðum króna í tæpa 12,3 milljarða. Þá nam jákvæð matsbreyting fjárfestingareigna 4,9 milljörðum króna, samanborið við 6,8 milljarða á sama tímabili í fyrra, að því er fram kemur í tilkynningunni. 

Áfram krefjandi aðstæður

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, segir starfsemina hafa gengið vel á fyrstu níu mánuðum ársins og vaxtarstefnu félagsins vera að skila árangri.

„Rekstrarumhverfið var þó nokkuð krefjandi á þriðja ársfjórðungi og við höfum fundið fyrir þeirri kólnun í hagkerfinu sem sett hefur svip sinn á haustið. Á meðan vaxtastig helst hátt má gera ráð fyrir að ytri aðstæður verði áfram krefjandi,“ segir Guðni í tilkynningunni.

Afkomuspá ársins er óbreytt frá uppgjöri fyrri árshelmings. Tekjuspáin hljóðar upp á 19,8 til 20,1 milljarð króna og spá um rekstrarhagnað upp á 13,2 til 13,5 milljarða.

Í ljósi krefjandi rekstrarumhverfis og lægri nýtingar á þriðja ársfjórðungi gera stjórnendur þó ráð fyrir að rekstrarniðurstaða ársins verði við neðri mörk spárinnar.

Tekjuvegið nýtingarhlutfall eigna var 93,1% á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 94,3% á sama tímabili í fyrra.

Uppbygging fyrir 9,2 milljarða

Reitir vörðu 9,2 milljörðum króna til uppbyggingar og þróunar á fyrstu níu mánuðum ársins. Umfangsmestu verkefnin eru umbreyting skrifstofuhúsnæðis við Nauthólsveg 52 í 87 rýma hjúkrunarheimili, uppbygging Hyatt-hótels við Laugaveg 176 og framkvæmdir við verslunarkjarna í Korputúni.

Við bætast tvö ný verkefni: hjúkrunarheimili við Þursaholt á Akureyri og umbreyting Borgartúns 37 í hjúkrunarheimili.

Gert er ráð fyrir að þessi fimm verkefni fari í útleigu eða rekstur á árunum 2027 og 2028. Stjórnendur áætla að þau skili samtals um 2,5 milljarða króna tekjuaukningu á ársgrundvelli.

Endurkaup fyrir allt að milljarð

Heildareignir Reita námu 272,1 milljarði króna í lok september og eigið fé 77,6 milljörðum. Eiginfjárhlutfallið var 28,7%, samanborið við 30,9% um síðustu áramót.

Vaxtaberandi skuldir námu 159,9 milljörðum króna í lok september, samanborið við 143,6 milljarða í árslok 2025.

Stjórn Reita samþykkti jafnframt í gær nýja endurkaupaáætlun sem heimilar félaginu að kaupa allt að 8,5 milljónir eigin hluta, eða 1,24% hlutafjár, fyrir allt að einn milljarð króna.

Framkvæmd áætlunarinnar hefst í dag. Hún gildir þar til viðmiði um annaðhvort fjölda hluta eða heildarfjárhæð hefur verið náð, þó ekki lengur en til 31. janúar 2027.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅