Ferðamenn í Kína geta látið drauminn rætast
Ferðamenn í Kína eiga þess kost að taka upp eigin sápuóperu til þess eins að birta á samfélagsmiðlum. Allt er þetta gert í Hengdian World Studios eða öllu heldur kínverska Hollywood.
Í íburðarmiklum sal í eftirlíkingu af kínverskri höll geta ferðamenn leikið aðalhlutverkið í sérsniðnum örþáttum fyrir samfélagsmiðla. Ferðamennirnir greiða fyrir að koma fram í lítilli en flottri framleiðslu. Í tökuteyminu er meðal annars tökumenn, ljósamenn og leikstjóri.
Þættirnir eru stuttir örþættir sem eru teknir lóðrétt þannig að þeir falla vel til birtingar á samfélagsmiðlum. Handritið er í anda sápuópera og geta verið allt niður í 30 sekúndur. Þetta hefur vakið miklar vinsældir og ferðamenn hafa verið hæst ánægðir með útkomuna.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗