Selirnir slá í gegn á samfélagsmiðlum

Selurinn hefur mannsaugu er oft sagt og víst að þeir hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem fjölgar stöðugt í Staðarsveitinni. mbl.is/Björn Jóhann

„Í rúm tuttugu ár var rekin ferðaþjónusta bænda í Ytri-Tungu í Staðarsveit, en ferðaþjónustu þar var hætt árið 2006,“ segir Þorgrímur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Lukkutanga ehf., en hann rekur í dag ferðamannasvæðið í selafjörunni við Ytri-Tungu á Snæfellsnesi.

Selafjaran er einn af betri stöðum landsins til að sjá seli en þeir sjást iðulega liggja á steinum í fjörunni.

„Eftir að ferðaþjónustunni var hætt og jörðin seld héldu ferðamenn áfram að koma í selafjöruna og umferð ferðamanna jókst jafnt og þétt,“ segir Þorgrímur.

Instagram og TikTok

„Ferðamenn voru að pósta myndum á samfélagsmiðlum og eftir Eyjafjallagosið, þegar Ísland komst í heimsfréttirnar, þá fjölgaði ferðamönnunum hér verulega,“ segir Þorgrímur. Hann segir að svæðið hafi ekki verið auglýst neitt, heldur hafi samfélagsmiðlar eins og Instagram og TikTok auglýst það upp með myndum ánægðra ferðamanna sem höfðu heimsótt selafjöruna.

„Það er síðan árið 2022 að fyrirtækið Lukkutangi ehf. er stofnað af landeigendum í Ytri-Tungu og Grenhóli,“ segir Þorgrímur. Markmið félagsins er að vernda landsvæðið og byggja það upp svo hægt sé að standa undir miklum fjölda ferðamanna sem sækja staðinn heim.

Veitingasalan í Ytri-Tungu er ekki rekin af Lukkutanga, en ferðamenn geta fengið sér pylsur og kaffisopa, brauð og kökur í heimsókninni. mbl.is/Björn Jóhann

Uppbygging innviða

„Það var ljóst að eitthvað þyrfti að gera því óheft ferðamennska í þessari viðkvæmu náttúru gengi ekki til lengdar. Vorið 2023 byrjuðum við á framkvæmdum við bílaplan og komum upp gjaldskyldu bílastæði, ekki síst til að geta spornað við landeyðingu sem var orðin talsverð. Ekki var aðeins ráðist í byggingu bílastæðis heldur hefur líka verið lagður nýr tvíbreiður vegur og göngustígar um allt svæðið, líklega um 1,5 km að lengd. Selirnir eru vissulega helsta aðdráttaraflið, sérstaklega fyrir erlendu ferðamennina sem koma hingað allt árið um kring en Íslendingarnir koma meira á sumrin. En það koma líka margir sveitungar hingað til þess að ganga hérna um og njóta náttúrunnar,“ segir Þorgrímur.

300-400 þúsund gestir

Þorgrímur segir að miklar framkvæmdir hafi verið í sjóvörnum undanfarin ár.

„Við lentum í miklu tjóni þegar óveðrið gekk yfir í mars árið 2025. Þá gekk sjórinn langt upp á land og skemmdi stóran hluta af göngustígunum svo sjóvarnir eru stærsti útgjaldaliðurinn núna.“ Um þessar mundir er einnig verið að undirbúa innviði svo hægt sé að setja upp vatnsklósett á svæðinu.

Þegar hann er spurður um fjölda ferðamanna sem sækja svæðið heim segir hann að þeir telji ekki ferðamenn heldur fjölda bíla.

„Á árinu 2025 komu um 80 þúsund bílar á svæðið og svo er bara spurning hversu margir eru í hverjum bíl. Ég tel að fjöldinn sé einhvers staðar á milli 300 og 400 þúsund ferðamenn á ári, en þetta er þó ekki vísindalega reiknað,“ segir hann að lokum.

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅