Demókratar ná öldungadeildarsæti af repúblikönum
Roy Cooper er á leið í öldungadeildina ef marka má spár miðlanna, sem eru reistar á töldum atkvæðum. AFP
Roy Cooper, fyrrverandi ríkisstjóri Norður-Karólínu, hefur unnið sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir hönd sama ríkis.
Þessu spá fréttastöðvarnar NBC News og ABC News. Repúblikanar héldu sætinu áður.
Hann hefur betur gegn Michael Whatley, fyrrverandi formanni landsnefndar repúblikana, sem nýtur stuðnings Donalds Trump Bandaríkjaforseta.
Cooper tekur við af repúblikananum Thom Tillis, sem sóttist ekki eftir endurkjöri eftir tvö kjörtímabil. Enginn demókrati hefur unnið öldungadeildarkosningar í Norður-Karólínu frá því að Kay Hagan náði kjöri árið 2008.
Fyrir kosningarnar höfðu repúblikanar 53 sæti í öldungadeildinni en demókratar 47 að meðtöldum tveimur óháðum þingmönnum sem starfa með þeim.
Haldi demókratar öllum sínum sætum þurfa þeir því að vinna þrjú sæti til viðbótar af repúblikönum til að ná meirihluta.
Cooper og Trump unnu í sömu kosningum
Cooper var fyrst kjörinn ríkisstjóri árið 2016 og endurkjörinn fjórum árum síðar.
Í bæði skiptin fékk Trump flest atkvæði í Norður-Karólínu í forsetakosningum sem fóru fram sama dag.
Áður en Cooper varð ríkisstjóri gegndi hann embætti dómsmálaráðherra ríkisins í sextán ár. Hann lét af embætti ríkisstjóra í janúar 2025 eftir tvö kjörtímabil.
Deildi við Trump um sjúkratryggingar
Tillis tilkynnti í júní í fyrra að hann gæfi ekki kost á sér að nýju. Daginn áður hafði hann greitt atkvæði gegn því að skatta- og útgjaldafrumvarp Trumps fengi framgang í öldungadeildinni.
Tillis lagðist gegn fyrirhuguðum niðurskurði á framlögum til Medicaid, sjúkratryggingakerfis fyrir tekjulága, sem hann sagði að myndi bitna á íbúum Norður-Karólínu.
Trump gagnrýndi Tillis opinberlega og hótaði að styðja mótframbjóðanda í forkosningum repúblikana. Eftir að Tillis tilkynnti ákvörðun sína hvatti forsetinn Whatley til að bjóða sig fram.
Whatley hafði áður stýrt flokksstarfi repúblikana í Norður-Karólínu en aldrei gegnt kjörnu embætti.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗