Iceland Airwaves er stöðugt í þróun
Margir stórtónleikar hafa farið fram í Listasafni Reykjavíkur á Airwaves. Ekki verða tónleikar þar í ár. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Áberandi breytingar verða gerðar á Iceland Airwaves-hátíðinni sem haldin verður í miðborg Reykjavíkur í vikunni. Engir tónleikar verða að þessu sinni á Listasafni Reykjavíkur sem hefur verið stærsti tónleikastaðurinn í um aldarfjórðung. Í staðinn verða í fyrsta sinn tónleikar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu Live sem sér um framkvæmd hátíðarinnar, segir Airwaves við góða heilsu þrátt fyrir síhækkandi aldur.
„Hátíðin gengur vel á alla mælikvarða. Það gengur vel að fá upprennandi og heit bönd hingað og við erum á hverju ári með rjómann af því mest spennandi í heiminum. Það eru um 100 bönd á hátíðinni en við þurftum að segja nei við 90 prósent af þeim böndum sem sóttu um að fá að koma. Ef bandið komst inn þá er klárlega eitthvað varið í það.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗