Myndir „heimsins versta ljósmyndara“ á Times Square

Myndir Blanche Mortemard af Íslandi blöstu við vegfarendum á hinu fjölfarna Times Square-stræti í New York. mbl.is/Flóki Larsen

Íslenska náttúru mátti sjá í allri sinni dýrð á skærum auglýsingaskiltum Times Square í New York þegar blaðamaður mbl.is átti þar leið hjá þarsíðustu helgi.

Ljósmyndirnar af Kirkjufelli og Vestrahorni eru hluti af auglýsingaherferð Icelandair og Hvíta hússins. 

Blanche Mortemard tók myndirnar. Það staðfestir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.

Hin franska Mortemard var valin úr hópi umsækjenda um stöðu „versta ljósmyndara heims“ fyrir auglýsingaherferðina. 127 þúsund manns sóttu um stöðuna sem fól í sér tíu daga ljósmyndunarferð um Ísland.

Mortemard virðist, miðað við myndirnar sem blöstu við á Times Square, hafa náð góðum tökum á ljósmyndun. Afraksturinn af ljósmyndun hennar verður sýndur á ljósmyndasýningum um allan heim.

Herferðin vann til alþjóðlegra auglýsingaverðlauna, Global Sabre Awards, í dag þar sem flugfélagið keppti við stór alþjóðleg fyrirtæki. 

Ísland unir sér vel í stórborginni. Heimsins versti ljósmyndari virðist ekki vera svo slæmur eftir allt saman. Æfingin skapar meistarann. mbl.is/Flóki

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅