Hversu oft ættu pör að stunda kynlíf?
Pör geta frekar spurt sig að því hvort kynlífið sé gott í stað þess hversu oft er verið að stunda það. Toa Heftiba/Unsplash
Hversu oft er eðlilegt að stunda kynlíf í sambandi? Þetta er spurning sem margir velta fyrir sér en fáir ræða opinskátt. Sumum finnst þeir stunda of lítið kynlíf á meðan öðrum finnst pressan um að stunda meira kynlíf yfirþyrmandi. En er yfirhöfuð einhver gullin regla um hversu oft pör ættu að njóta ásta?
Samkvæmt grein sem birtist á bandaríska miðlinum Cosmopolitan er svarið einfalt. Það er ekkert rétt svar og samanburður við önnur pör getur valdið meiri skaða en gagni.
Fólk stundar minna kynlíf en áður
Ýmislegt getur haft áhrif á kynhvötina og þar spilar streita stórt hlutverk. Aukinn framfærslukostnaður, efnahagsleg óvissa, álag í vinnu og fjölskyldulífi geta allt verið þættir sem draga úr löngun til kynlífs.
Kynfræðingurinn Justin Lehmiller, sem er doktor í sálfræði og höfundur bókarinnar Tell Me What You Want, segir í samtali við Cosmopolitan að rannsóknir bendi til þess að fólk stundi almennt minna kynlíf nú en áður.
„Í rannsóknum mínum hef ég séð ýmsa þætti sem stuðla að þessari þróun, meðal annars aukna streitu og kvíða, álag sem fylgir foreldrahlutverkinu og meiri tíma sem fólk eyðir í snjalltækjum,“ segir hann í samtali við Cosmopolitan.
Annar sérfræðingur sem er til tals í greininni, Wildilisa Moronta, tekur í sama streng. Hún segir að þótt tíðni kynlífs sé afar mismunandi milli para heyri hún sífellt oftar að fólk stundi sjaldnar kynlíf, jafnvel þótt það sé ánægt með kynlífið þegar það á sér stað.
Fólk gerir meiri kröfur til kynlífsins
En það er ekki aðeins streita og daglegt amstur sem hefur áhrif á kynlíf fólks. Sumir eru orðnir meðvitaðri um eigin þarfir og eru síður tilbúnir að stunda kynlíf eingöngu vegna þess að því finnst það eiga að gera það.
„Sífellt fleiri hugsa með sér að ef kynlífið er ekki gott vilji þeir frekar sleppa því alveg,“ segir í greininni.
Er til einhver gullin tala?
Margir vilja vita hvort ákveðinn fjöldi skipta á viku sé merki um heilbrigt og gott samband. Melanie Eichhorn, kynfræðingur sem er einnig til viðtals, segir að þessi spurning komi reglulega upp.
Fólk vilji gjarnan fá ákveðið viðmið sem staðfesti að kynlífið í sambandinu sé eðlilegt en að hennar sögn er engin slík tala til.
Það sem skiptir máli er að báðir aðilar séu sáttir við kynlífið og að þarfir þeirra séu virtar. Tíðni kynlífs er sem sagt ekki áreiðanlegur mælikvarði á gæði sambands. Í stað þess að einblína á hversu oft fólk stundar kynlíf ætti frekar að skoða hvort báðir aðilar séu ánægðir með kynlífið, nándina og upplifunina.
Hvenær þarf að ræða kynlífið?
Það er eðlilegt að kynhvöt tveggja einstaklinga sé ekki alltaf sú sama. Annar aðilinn gæti viljað stunda kynlíf oftar en hinn og það þarf ekki endilega að þýða að eitthvað sé að sambandinu.
Hins vegar getur verið mikilvægt að ræða málin ef annar aðilinn upplifir óánægju, höfnun eða þrýsting.
„Það er ástæða til að ræða málin þegar að minnsta kosti annar aðilinn hefur áhyggjur eða er ósáttur. Báðir þurfa ekki að upplifa vandamálið til þess að það skipti máli,“ segir Moronta.
Sérfræðingarnir mæla með því að slík samtöl fari fram utan svefnherbergisins og að fólk nálgist þau af forvitni og skilningi fremur en ásökunum.
Það sé til dæmis vænlegra að spyrja maka sinn hvernig honum líði með kynlífið í sambandinu en að byrja á því að telja hversu oft annar aðilinn hafi átt frumkvæðið.
Hættið að bera ykkur saman við önnur pör
Eitt mikilvægasta ráðið sem sérfræðingarnir gefa er að hætta að bera eigið kynlíf saman við kynlíf annarra.
„Ekki falla í þá gryfju að bera kynlífið þitt saman við kynlíf annarra. Já, annað fólk gæti stundað meira kynlíf en þú, en það þýðir ekki endilega að meira kynlíf myndi gera þig hamingjusamari.“
Moronta bendir jafnframt á að fólk hafi sjaldnast fulla mynd af kynlífi annarra para. Þótt einhver segist stunda kynlíf oft þýði það ekki sjálfkrafa að viðkomandi sé ánægðari í sambandinu.
Sérfræðingarnir hvetja fólk því til að breyta spurningunni sem það spyr sig.
Í stað þess að velta fyrir sér hvort parið stundi jafn mikið kynlíf og önnur pör sé mun gagnlegra að spyrja: „Er kynlífið í okkar sambandi að virka fyrir okkur bæði?“
Þegar öllu er á botninn hvolft er það ekki fjöldi skipta sem segir til um hversu gott kynlíf pars er, heldur gagnkvæm ánægja, nánd og samskipti.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗