Paris Jackson krefst 73 milljarða úr dánarbúi föður síns

Paris Jackson á viðburði í fyrra.

Paris Jackson á viðburði í fyrra. AFP/Tiziana Fabi

Paris Jackson hefur farið fram á að 600 milljónir dala, jafnvirði um 73 milljarða króna, verði færðar úr dánarbúi föður hennar, Michaels Jacksons, í sjóð sem faðir hennar stofnaði í þágu fjölskyldunnar.

Hún sakar John Branca, skiptastjóra búsins, um að halda arfi hennar og bræðra hennar eftir.

Samkvæmt málsskjölum sem Page Six hefur undir höndum lagði söngkonan, sem er 28 ára, kröfuna fram við dómstól í Los Angeles 29. október. Hún telur engar málefnalegar ástæður fyrir því að fjármunirnir hafi ekki skilað sér í sjóðinn, rúmum 17 árum eftir lát föður hennar.

Michael Jackson á blaðamannafundi í París árið 1996. Söngvarinn lést árið 2009, fimmtugur að aldri. AFP/Vincent Amalvy

Segir greiðslur háðar ákvörðunum skiptastjóra

Paris segir að samkvæmt erfðaskrá föður hennar hafi hún og bræður hennar, Prince, 29 ára, og Bigi, 24 ára, átt að byrja að fá tekjur af sínum hluta sjóðsins við 21 árs aldur. Þess í stað fái þau lægri fjárhæðir sem Branca ákveði.

Hún sakar hann jafnframt um að beita yfirráðum sínum yfir greiðslunum til að fæla systkinin frá því að gagnrýna umsýslu dánarbúsins. Eftir að hún gerði athugasemdir við störf hans í fyrra hafi greiðslur til þeirra verið skertar verulega.

Samkvæmt málsskjölunum var ætlun Jacksons að hvert barnanna fengi þriðjung höfuðstóls síns greiddan út við þrítugt, helming þess sem eftir stæði við 35 ára aldur og afganginn við fertugt.

Börn Michael Jackson. Drengirnir Blanket og Prince og dóttirin Paris í miðið. AFP

Dánarbúið hafnar ásökunum

Talsmaður dánarbúsins hafnar því að greiðslur hafi verið skertar eða þeim haldið eftir og segir þær fullyrðingar uppspuna. Þegar hafi meira en 200 milljónir dala, um 24 milljarðar króna, verið greiddar til Paris og annarra rétthafa eða varið í þeirra þágu.

Óútkljáð lagaleg álitaefni komi hins vegar í veg fyrir að unnt sé að færa allt tilskilið fé í sjóðina. Þar vegi þyngst yfirstandandi deila við bandarísk skattayfirvöld.

Paris telur dánarbúið hafa næga fjármuni til að greiða í fjölskyldusjóðinn og standa jafnframt undir skuldbindingum sínum. Hún fer fram á að dómari fyrirskipi greiðslu umræddra 600 milljóna dala, eða þeirrar fjárhæðar sem hann telur hæfilega.

Málið verður tekið fyrir í desember. Þá verða rúm 17 ár liðin frá andláti Jacksons og skammt þar til elsti sonur hans, Prince, verður þrítugur og á samkvæmt fyrirmælum föður síns að fá fyrsta hluta höfuðstólsins greiddan út.

Prince Jackson verður þrítugur í febrúar og á þá samkvæmt fyrirmælum föður síns að fá hluta arfs síns greiddan út. Hér er hann með systur sinni árið 2022. AFP/Michael Loccisano

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅