Game of Thrones-stjarna mætti á Íslenska dansflokkinn
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Kari Skogland, Ólafur Darri Ólafsson, Alfie Allen og Hekla Lind Ólafsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Mikið var um dýrðir í Borgarleikhúsinu á föstudaginn þegar sýning sem ber yfirskriftina Straumur var frumsýnd. Íslenskir menningarfrömuðir voru mættir á fremsta bekk sem og fólk frá Hollywood.
Það vakti athygli að breski leikarinn Alfie Allen mætti á frumsýninguna. Allen er meðal annars þekktur fyrir að leika Theon Greyjoy í Game of Thrones. Allen var í fylgd með þeim Lovísu Ósk Gunnarsdóttur listrænum stjórnanda Íslenska dansflokksins og eiginmanni hennar, Ólafi Darra Ólafssyni leikara. Með þeim var einnig leikstjóranum Kari Skogland en hún vinnur að sjónvarpsþáttum sem teknir eru upp hér á landi.
120 sóttu um
Á sýningunni eru sýnd fjögur verk eftir fjóra upprennandi danshöfunda. Um 120 danshöfundar sóttu um að fá að semja fyrir dansflokkinn en aðeins fjórir voru valdir. Verkin fjögur eiga það sameiginlegt að beina sjónum að mannlegu eðli, en gera það frá ólíkum sjónarhornum og með afar ólíkum nálgunum.
Dansararnir Heba Eir Kjeld og Halla Þórðardóttir létu sig ekki vanta og voru í mikilli sveiflu allt kvöldið. mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗











