Ráðlagði aðdáanda í ástarsorg
Harry Styles gaf sér tíma til að ræða ástarmálin við aðdáanda á tónleikum sínum í New York. Samsett mynd/Instagram
Söngvarinn Harry Styles vakti kátínu þegar hann gaf aðdáanda ráð í ástarmálum á tónleikum sínum í New York um helgina.
Aðdáandinn hélt á skilti þar sem stóð að sá sem hún væri skotin í væri nýtrúlofaður.
Styles, sem er 32 ára, kom auga á skiltið á hrekkjavökutónleikum sínum í Madison Square Garden og gaf sér tíma til að ræða við konuna, Sofi Subero.
„Það hljómar eins og þú hafir misst af lestinni! Þú hefðir átt að segja honum það. Virkilega sárt,“ sagði söngvarinn.
Hann vildi vita hvað maðurinn héti en Subero vildi ekki gefa það upp.
„Jæja, stundum trúlofar fólk sig. Kannski áttu enn möguleika,“ svaraði Styles.
Töldu skiltið vísa til hans sjálfs
Myndskeið af samskiptunum hefur farið víða á samfélagsmiðlum. Margir töldu skiltið vísa til Styles sjálfs en fregnir af trúlofun hans og leikkonunnar Zoë Kravitz hafa verið áberandi að undanförnu.
Kravitz var meðal tónleikagesta og hafði parið samræmt hrekkjavökubúninga sína með New York að leiðarljósi.
Styles steig á svið í risastórum rottubúningi, með bleikar loppur og langan hala, en Kravitz klæddist hvítum kjól sem líktist plastpoka utan um sóttan mat.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗