Game of Thrones-stjarna mætti á Íslenska dansflokkinn

Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Kari Skogland, Ólafur Darri Ólafsson, Alfie Allen og Hekla Lind Ólafsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mikið var um dýrðir í Borgarleikhúsinu á föstudaginn þegar sýning sem ber yfirskriftina Straumur var frumsýnd. Íslenskir menningarfrömuðir voru mættir á fremsta bekk sem og fólk frá Hollywood. 

Það vakti athygli að breski leikarinn Alfie Allen mætti á frumsýninguna. Allen er meðal annars þekktur fyrir að leika Theon Greyjoy í Game of Thrones. Allen var í fylgd með þeim Lovísu Ósk Gunnarsdóttur listrænum stjórnanda Íslenska dansflokksins og eiginmanni hennar, Ólafi Darra Ólafssyni leikara. Með þeim var einnig leikstjóranum Kari Skogland en hún vinnur að sjónvarpsþáttum sem teknir eru upp hér á landi. 

120 sóttu um

Á sýningunni eru sýnd fjögur verk eftir fjóra upprennandi danshöfunda. Um 120 danshöfundar sóttu um að fá að semja fyrir dansflokkinn en aðeins fjórir voru valdir. Verkin fjögur eiga það sameiginlegt að beina sjónum að mannlegu eðli, en gera það frá ólíkum sjónarhornum og með afar ólíkum nálgunum. 

Dansararnir Heba Eir Kjeld og Halla Þórðardóttir létu sig ekki vanta og voru í mikilli sveiflu allt kvöldið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svanborg Sigurðardóttir og Óttar Proppé.

Lára Sóley Jóhannsdóttir og Svandís Dóra Einarsdóttir.

Sirrý Hallgrímsdóttir og Birna Garðarsdóttir.

Guðrún Ósk Maríasdóttir og Árni Björn Kristjánsson

Helena Ólafsdóttir, Heiðar Jóhannsson og Katrín Steinunn Antonsdóttir.

Guðrún Sóley Gestsdóttir og Guðbjörg Garðarsdóttir.

Lísandra Týra Jónsdóttir og Árni Vilhjálmsson

Kristín Marja Ómarsdóttir og Sally Cowden.

Egill Heiðar Anton Pálsson og tónskáldið Ricky Ian Gordon.

Kara Hergils Valdimarsdóttir og Sarah Aviaja Hammeken.

Það var mikil stemmning í Borgarleikhúsinu.

内容来自 Mbl.is - Smartland - Samkvæmislífið,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅