Þrjú ný bílamerki á leið til landsins
Þrjú ný bílamerki bætast í úrval Vatt ehf. í byrjun næsta árs. Stefnt er að frumsýningu merkjanna í janúar eða febrúar í Skeifunni 17.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu, sem þegar selur bíla frá BYD, stærsta rafbílaframleiðanda heims, ásamt sendibílum frá Maxus.
Merkin nefnast Omoda, Exlantix og Jaecoo en að baki þeim stendur öflugur alþjóðlegur bílaframleiðandi, Chery, sem á sér nærri 30 ára sögu.
Chery var stofnað árið 1997 og seldi um 2,8 milljónir bíla á heimsvísu árið 2025. Framleiðsla samstæðunnar spannar rafbíla, tengiltvinnbíla og bensínbíla.
Koma merkjanna þriggja markar nýjan kafla í starfsemi Vatt og færir íslenskum bílkaupendum enn fleiri valkosti, segir í tilkynningunni.
Undirbúningur er hafinn og stefnt er að því að frumsýna bílana í janúar eða febrúar hjá Vatt í Skeifunni 17. Nánari upplýsingar um bílgerðir og dagsetningu frumsýningar verða kynntar þegar nær dregur.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗