„Vel möguleiki á að áhrifin verði önnur“

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir alveg ljóst að bankaskattur leggist á skuldarlið banka og hækkun hans leiði væntanlega annaðhvort til þess, þegar til lengri tíma er litið, að innlánavextir lækki eða útlánavextir hækki.

Þetta kom fram í máli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra á opnum fundi í efnahags- og viðskiptanefnd um skýrslu fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands í dag.

Hækkunin, sem boðuð er í fjármálaáætlun vegna áranna 2027–2031, á að skila ríkissjóði sex milljörðum króna í auknar tekjur með 75% hækkun skatts á skuldir fjármálafyrirtækja í 0,254%.

„Það er alveg vel möguleiki á að áhrifin verði önnur ef það verður sólarlagsákvæði,“ sagði Ásgeir enn fremur, en sólarlagsákvæði kveður á um að tiltekin lagagrein renni sjálfkrafa úr gildi á ákveðnum tíma eða við tiltekin skilyrði.

„Við höfum ekki gert greiningu á þessu en auðvitað eru viðbrögð við sköttum mismunandi eftir því hvort þeir eru tímabundnir eða varanlegir,“ sagði hann. Það sé þekkt lögmál í skattheimtu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅