Forskot á Airwaves-sæluna í kvöld og á morgun

Alaska, til hægri, ásamt lúpínu og Shygirl. Þær verða áberandi í kvöld og á morgun áður en formleg dagskrá Airwaves hefst. Samsett mynd/Eggert Jóhannesson/Aðsend

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefst á fimmtudaginn og stendur fram á laugardag. Utan hinnar hefðbundnu dagskrár er þó ýmislegt spennandi í gangi og krefst ekki allt armbands á hátíðina.

Í kvöld kemur lúpína til að mynda fram í Sky lagoon. Ætla má að gestir Himnalóns fái aðeins meira fyrir peninginn í kvöld en alla jafna.

Annar viðburður með takmarkaðan aðgang er um kaffileytið á morgun á Keflavíkurflugvelli. Árný Margrét og Inspector Spacetime koma fram á tónleikum í brottfararsalnum. Brottfararspjald er nauðsynlegt vilji fólk sjá þessa tónleika.

Á morgun, miðvikudag, verður svo forvitnileg dagskrá í helstu plötubúðum borgarinnar. Dagskráin stendur frá 16-21 og er aðgangur ókeypis. Tatjana treður upp klukkan 15 í Öldu music, Bjarni Daníel verður í 12 Tónum klukkan 17 og klukkan 17.45 verða RM Hendrix & Júlía Mogensen í Space Odyssey.

Mackenzie Leighton & RAKEL troða upp í Lucky Records klukkan 18.30 og lúpína verður í Reykjavík Record Shop klukkan 19.30. Þá býður Smekkleysa upp á Yang Soup klukkan 20.15.

Eitt heitasta klúbbashow Evrópu

Annað kvöld má búast við mikilli stemningu í Ráðhúsi Reykjavíkur, sem nú er í fyrsta skipti notað sem tónleikastaður á Airwaves. Þar kemur Shygirl fram og til upphitunar eru Alaska og Joey Christ. Í kynningu segir að Shygirl mæti með eitt heitasta klúbbashow Evrópu. Kaupa þarf miða sérstaklega á þennan viðburð.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅