United fylgist með fjórum leikmönnum frá sama liði

Michael Carrick er knattspyrnustjóri Manchester United.

Michael Carrick er knattspyrnustjóri Manchester United. AFP/Glyn Kirk

Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur fylgst grannt með fjórum leikmönnum þýska félagsins Borussia Dortmund að undanförnu.

Samkvæmt Teamtalk hefur enska félagið fylgst með Serhou Guirassy, Jobe Bellingham, Felix Nmecha og Daniel Svensson.

Guirassy er einn helsti framherji þýsku deildarinnar en hann er þrítugur. Jobe Bellingham er 21 árs miðjumaður sem gekk í raðir Dortmund frá Sunderland sumarið 2025.

Felix Nmecha er 26 ára gamall miðjumaður sem hefur verið í lykilhlutverki hjá þýska landsliðinu og Daniel Svensson er 24 ára vinstri bakvörður sem er landsliðsmaður Svía.

United er í miklu basli í ensku úrvalsdeildinni en liðið er í 17. sæti með sjö stig eftir níu leiki.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅