Dreif sig heim þegar hún sá brauðrúllurnar

Nýsteiktar brauðrúllur með kanilsykri eru ljúf leið til að kalla heimilisfólkið að borðinu. Ljósmynd/Aðsend

Það getur verið erfitt að standast nýsteiktar brauðrúllur með sætri fyllingu og kanilsykri. Það fékk Svava Gunnarsdóttir, sem heldur úti uppskriftasíðunni Ljúfmeti og lekkerheit, að reyna þegar hún birti mynd af þessum girnilega rétti á Instagram.

Í færslu á síðunni rifjar Svava upp að hún hafi boðið strákunum upp á rúllurnar meðan þeir komu garðhúsgögnunum fyrir á pallinum. Dóttir hennar var hjá vinkonu sinni en dreif sig heim þegar hún sá myndina. Þá biðu hennar hins vegar tómir diskar.

„Ég held að hún sé ekki enn búin að fyrirgefa okkur að hafa klárað rúllurnar því hún kom að tómum diskum,“ skrifar Svava.

Það þarf ekki mikið til að gera sér glaðan dag með þessum sætu brauðrúllum. Ljósmynd/Aðsend

Rúllurnar eru einfaldar í undirbúningi og fyllinguna má velja eftir smekk. Nutella, hnetusmjör og sulta eru meðal tillagna Svövu. Að lokinni steikingu er rúllunum velt upp úr kanilsykri og þær bornar fram heitar, með hlynsírópi ef vill.

Fyllinguna má velja eftir smekk en súkkulaðiunnendur kunna eflaust vel að meta Nutella. Ljósmynd/Aðsend

Franskar brauðrúllur

Best er að bera rúllurnar fram heitar og leyfa hverjum að næla sér í bita. Ljósmynd/Aðsend

  • 8 sneiðar af fransbrauði
  • Nutella, hnetusmjör og sulta eða önnur fylling að eigin vali
  • 2 egg
  • 3 msk. mjólk
  • ¾ dl sykur
  • 1 stútfull tsk. kanill
  • Smjör til steikingar
  • Hlynsíróp til að bera fram með, má sleppa

Aðferð

  1. Skerið skorpuna af brauðsneiðunum og fletjið þær út með kökukefli.
  2. Setjið um 1–2 tsk. af fyllingu í rönd um 2 cm frá öðrum enda hverrar brauðsneiðar. Rúllið sneiðunum upp.
  3. Hrærið saman egg og mjólk í grunnri skál og setjið til hliðar.
  4. Blandið sykri og kanil saman í annarri skál og setjið til hliðar.
  5. Hitið pönnu við miðlungshita og bræðið um 1 msk. af smjöri á henni.
  6. Veltið brauðrúllunum upp úr eggjablöndunni og leggið þær á pönnuna með samskeytin niður.
  7. Steikið rúllurnar á öllum hliðum og bætið smjöri á pönnuna eftir þörfum.
  8. Takið rúllurnar af pönnunni og veltið þeim strax upp úr kanilsykrinum.
  9. Berið fram heitar, einar og sér eða með hlynsírópi.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅