Viðsnúningur í rekstri hjá Arnarlaxi
Viðsnúningur varð til hins betra í rekstri Arnarlax samkvæmt nýbirtu árshlutauppgjöri.
Arnarlax, sem stundar sjókvíaeldi á Vestfjörðum, greinir frá 1,4 milljóna evra rekstrarhagnaði fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT), eða sem svarar til 190 milljóna króna, á þriðja ársfjórðungi.
Á sama tímabili í fyrra var 9,4 milljóna evra EBIT tap, eða sem svarar til tæplega 1,3 milljarða króna.
Þá jókst framleiðsla milli ára, fór úr 3.800 tonnum á þriðja fjórðungi í fyrra í 5.200 tonn á þriðja fjórðungi þessa árs.
Í kynningu á reikningunum, sem birt var í morgun, segir að saman hafi farið aukin framleiðsla og samdráttur kostnaðar og að verð fyrir vöruna hafi verið hærra.
Rekstrartekjur eru sagðar hafa aukist um 60 prósent og numið 40,1 milljón evra, eða sem svarar til tæplega 5,5 milljarða króna.
Þá kemur fram að hlutur sölu á Bandaríkjamarkað hafi aukist milli fjórðunga, farið úr 16 prósentum á öðrum ársfjórðungi í 36 prósent á þeim þriðja. Aukin sala er að hluta rakin til þess að ekki séu lagðir tollar á íslenskan lax í Bandaríkjunum.
Aukin sala á Bandaríkjamarkað endurspeglast svo í lægra hlutfalli á öðrum markaðssvæðum. Sala til Asíu fór úr 19 prósentum í 17 og á Evrópumarkað úr 65 prósentum á öðrum fjórðungi 2026 í 47 prósent á þeim þriðja. Er það sagt sögulega lágt hlutfall.
Þá kemur fram að nettó vaxtaberandi skuldir, að meðtöldum leiguskuldbindingum, hafi aukist um 10,7 milljónir evra (tæplega 1,5 milljarða króna) á ársfjórðungnum og numið 134 milljónum evra í lok fjórðungsins, eða sem svarar til ríflega 18,2 milljarða króna.
Fyrirtækið gerir ráð fyrir stöðugum markaðshorfum á lokafjórðungi ársins. Á árinu er gert ráð fyrir því að slátra 20 þúsund tonnum af laxi, en þrettán hundruð tonn hafa verið færð yfir til 2027, þegar gert er ráð fyrir framleiðslu upp á 18 þúsund tonn.
Fyrirtækið segir eftirspurn góða eftir vörum þess á alþjóðlegum mörkuðum og að áfram sé unnið að leyfi fyrir 10 þúsund tonna eldi í Ísafirði, en uppi sé óvissa um framtíðarregluverk lagareldis á Íslandi.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗