Hvað vilt þú geta gert þegar þú verður 55, 70, 85 ára?
Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar skrifar um aldur og heilsurækt í nýjum pistli á Smartlandi. Hún segir að viðhorf fólks til heilsuræktar sé að breytast mikið um þessar mundir.
Fjöllyfjameðferð fyrir framtíðina
Ekki hvaða tölu vigtin sýnir, ekki hvað þú vilt sjá í speglinum, heldur hvað þú vilt geta gert. Staðið áreynslulaust upp af gólfinu án stuðnings, borið ferðatöskuna upp stigana, hlaupið með barnabörnunum, ferðast, dansað, haldið jafnvægi, haldið sjálfstæði þínu og gert það sem þig langar til.
Viðhorf til heilsuræktar er að breytast. Við erum að átta okkur sífellt betur á því að góð heilsa er ekki sjálfgefin, lífsstíllinn okkar, venjur og hvernig við sinnum líkamanum skiptir miklu máli, ekki bara stundum. Þeim fjölgar stöðugt sem átta sig á að líkamsrækt snýst ekki um útlit heldur lífsgæði, heilbrigð æviár, andlega og líkamlega vellíðan og einfaldlega orku fyrir lífið.
Frá útliti til getu
Um árabil snérist boðskapur líkamsræktar að miklu leyti um megrun, að komast í form til að líta betur út, verða stæltari. Í sjálfu sér ekkert rangt við það. En vísindin um heilsu, vellíðan, langlífi og heilbrigð æviár bjóða upp á miklu stærri mynd.
Að viðhalda virkni, varðveita getu, draga úr og seinka hrörnun og viðhalda sjálfstæði.
Hreyfing hefur áhrif á ótrúlega marga, ef ekki flesta, af þeim líffræðilegu ferlum sem tengjast hækkandi lífaldri.
Grein í tímaritinu Frontiers in Endocrinology (Rebelo-Marques o.fl., 2018) segir frá því hvernig regluleg hreyfing hefur jákvæð áhrif á öll níu helstu einkenni öldrunar í frumum, allt frá hvatberum til stofnfrumna. Niðurstaða höfunda er að líta ætti á hreyfingu sem eins konar „fjöllyf“ (polypill), eina meðferð sem verkar á marga þætti í einu.
Hversu magnað. Ein „pilla“ sem styrkir hjartað, beinin, vöðvana, jafnvægið, heilann og svefninn. Hún er til, hún nefnist hreyfing.
Líkamsræktarstöðin sem viðhaldsstöð
Við förum með bílinn í skoðun, við málum húsið, við berum olíu á pallinn. En líkaminn, sá eini sem við fáum til lífstíðar, hve mikið viðhald fær hann?
Það er fagnaðarefni að í dag sjáum við skýr merki þess að heilsuræktarstöðvar snúast minna um „að koma sér í form“, eru frekar orðnar viðhaldsstöðvar fyrir mannslíkamann. Staður þar sem þú kemur í hverri viku, allan ársins hring til að viðhalda heildrænu heilbrigði, vöðvum, beinum, hjarta, hreyfanleika, jafnvægi og andlegri heilsu, ekki síst og margir rækta þar einnig félagsleg tengsl.
Og þetta á vitanlega ekki bara við um miðaldra og eldri. Fyrir yngri kynslóðir má orða þetta öðruvísi: Geta fram yfir útlit. Heilbrigð æviár sem langtímamarkmið og að temja sér góðar venjur sem stuðla að því að hafa getu fyrir lífið og framtíðina.
Hvað viljum við mæla?
Sífellt fjölgar möguleikum á heilsutengdum mælingum. Kortisól, testósterón, insúlín, hjartsláttarbreytileiki, örveruflóra, genamengi, líffræðilegur aldur, bólgugildi og margt fleira. Við fögnum því.
En það að hægt sé að mæla eitthvað þýðir ekki endilega að auðvelt sé að bæta það á markvissan hátt og fylgjast með árangri. Öldrun líkamans er í raun flókið fyrirbæri. Þegar einum þætti er breytt getur það haft afleiðingar annars staðar.
Mikilvægt er að spyrja sig, „hvað get ég gert í dag sem ég gat ekki fyrir ári“? Og „hvað get ég enn gert sem ég vil aldrei missa niður“?
Hversu mikla getu varðveiti ég?
Gripstyrk, vöðvastyrk, jafnvægi, þol, hreyfanleika o.s.frv. Hversu fljótt jafna ég mig eftir áreynslu? Þetta eru tölur sem gefa okkur mikilvægar upplýsingar og sýna að heilsusamlegar venjur skila okkur raunverulegum og ómetanlegum ávinningi fyrir lífið.
Heilbrigð æviár fram yfir líftíma
Enginn getur lofað þér að þú verðir 105 ára. Raunhæfara er að setja sér það einfalda markmið að stuðla markvisst að því að halda orku og virkni sem lengst og vitaskuld vona að afmælisdagarnir verði sem flestir.
Hver er munurinn á líftíma og heilbrigðum æviárum? Líftími er vissulega hve lengi þú lifir. Heilbrigð æviár er hve lengi þú ert heilbrigður og fær um að gera það sem skiptir þig máli. Heilbrigðu æviárin eru sá hluti sem þú hefur mest áhrif á sjálfur, með því sem þú gerir í dag, á morgun og í næstu viku.
Grunnurinn stendur
Nóbelsverðlaunahafinn Venki Ramakrishnan, sameindalíffræðingur og fyrrverandi forseti bresku vísindaakademíunnar Royal Society, gaf árið 2024 út bókina Why We Die. Þar fer hann yfir stöðu vísindanna um öldrun og niðurstaðan er í raun einfaldari en mann gæti grunað. Í viðtali í hlaðvarpi Chicago-háskóla orðaði hann það á svo einfaldan hátt. „Þrennan sem er undir þér sjálfum komin, hollt mataræði, hreyfing og svefn, er betri en nokkurt öldrunarlyf á markaðnum.“ Hann bætti við að minna álag, félagsskapur og vinátta væru líka ókeypis og án aukaverkana.
Þokkalega öflug þrenna sem við flest höfum í hendi okkar.
Settu þig í fyrsta sæti
Það er ekki eftir neinu að bíða, framtíð þín hefst núna. Verkefnið þarf alls ekki að vera flókið. 30 mínútna ganga, lyfta lóðum í 30 mínútur, t.d. með æfingafélaga eða hvetjandi tal eða tóna í eyrunum. Vandaðu valið á því sem þú setur ofan í þig og settu slökun og svefn í forgang.
Að rækta heilsuna er eitt það dýrmætasta sem þú getur gert, fyrir þig, en einnig fyrir fólkið þitt og leik og störf um alla þína framtíð.
Settu heilsuna þína ofar í forgang. Ekki á eftir vinnunni, heimilinu og öllu hinu, frekar efst. Góð orka, styrkur, úthald og hreysti er grunnurinn að betri lífsgæðum, í raun að því að takast á við allt í lífinu.
Allt hefur áhrif, einkum við sjálf.
Heimildir:
Rebelo-Marques, A., De Sousa Lages, A., Andrade, R., Fontes Ribeiro, C., Mota-Pinto, A., Carrilho, F. og Espregueira-Mendes, J. (2018). Aging Hallmarks: The Benefits of Physical Exercise. Frontiers in Endocrinology, 9, 258. https://doi.org/10.3389/fendo.2018.00258 — orðrétt úr greininni: „Exercise should be seen as a polypill, which improves the health-related quality of life and functional capabilities.“
Ramakrishnan, V. (2024). Why We Die: The New Science of Aging and the Quest for Immortality. William Morrow (útg. 19. mars 2024).
University of Chicago News, hlaðvarpsþáttur með Venki Ramakrishnan (apríl 2024): https://news.uchicago.edu/why-we-die-and-how-we-can-live-longer-nobel-laureate-venki-ramakrishnan-ep-134 — orðrétt: „the trio of things that you can do yourself is better than any anti-aging medicine on the market“ og um minna álag, félagsskap og vináttu: „They're all free. They don't have side effects.“
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗