Markaðsherferðin valin sú besta í heimi
Auglýsingastofan Hvíta húsið og Icelandair hlutu á dögunum stærstu verðlaun Global SABRE Awards 2026 fyrir herferðina Iceland: The Real Unreal (Ísland: Raunverulega óraunverulegt), sem valin var besta markaðs- og almannatengslaherferð ársins 2026 á alþjóðamörkuðum.
Að því er segir í tilkynningu voru verðlaunin afhent 26. október í Chicago. Alls komu til álita fleiri en 5.500 verkefni frá yfir 60 löndum. Verðlaunin eru sögð ein þau virtustu í heimi á sviði almannatengsla og markaðssamskipta. Þar eru verðlaunaðar herferðir sem þykja skara fram úr fyrir skapandi nálgun, stefnumótandi hugsun og mælanlegan árangur.
The Real Unreal var í samkeppni við herferðir nokkurra stærstu vörumerkja heims, meðal annars LEGO, Microsoft, IBM, Dove og Ford. Sigurinn er því mikil viðurkenning fyrir íslenska hugmyndavinnu á alþjóðavettvangi.
Þetta er ekki gervigreind
Hugmyndin að herferðinni kviknaði þegar Hvíta húsið og Icelandair fóru yfir niðurstöður rýnihópa á erlendum mörkuðum á síðasta ári. Sumir þátttakendur trúðu því ekki að myndirnar sem Icelandair notaði til að kynna Ísland væru raunverulegar. Landslagið þótti svo stórbrotið að myndirnar hlytu að vera búnar til með gervigreind.
Þessar efasemdir urðu grunnur herferðarinnar undir slagorðinu Þetta er ekki gervigreind. Þetta er Ísland. (This is not AI. Just Iceland).
Þannig tók herferðin á krefjandi áskorunum í nútíma markaðssamskiptum, auknum áhrifum gervigreindar og því að sífellt erfiðara verður fyrir fólk að greina á milli raunverulegs og tilbúins myndefnis. Hún var unnin í samstarfi við almannatengslastofuna FleishmanHillard, Kubbco og Launch og íslensk framleiðsla var í höndum Republik.
Herferðin vakti mikla athygli á alþjóðavettvangi og skilaði yfir 170 umfjöllunum í erlendum fjölmiðlum. Áætlað er að hún hafi náð til yfir 400 milljóna um allan heim og skapað víðtæka umræðu um áreiðanleika myndefnis, gervigreind og sérstöðu Íslands sem ferðamannalands.
Í kjölfarið mældist marktæk aukning á því hversu líklegt fólk taldi að það myndi velja Icelandair á öllum helstu mörkuðum félagsins í Evrópu og Norður-Ameríku.
Fjöldi alþjóðlegra viðurkenninga
„Að íslensk hugmynd skuli verða hlutskörpust í samkeppni við herferðir stærstu vörumerkja heims er gríðarlega mikil viðurkenning fyrir okkur og alla sem komu að verkefninu,“ er haft eftir Önnu Kristínu Kristjánsdóttur, stjórnarformanni hjá Hvíta húsinu.
„Það sem gerir árangurinn sérstaklega ánægjulegan er að hugmyndin byggir á einfaldri en sterkri innsýn í breytta heimsmynd þar sem fólk er farið að efast um það sem það sér. Okkur tókst að breyta þeirri áskorun í skapandi tækifæri sem vakti athygli um allan heim. Þetta sýnir hverju er hægt að áorka með hugrekki, góðri hugmynd og öflugu samstarfi.“
Þá er haft eftir Gísla S. Brynjólfssyni, markaðsstjóra Icelandair, að í harðnandi alþjóðlegri samkeppni skipti máli að Icelandair hafi skýra rödd og þori að fara eigin leiðir. Með þessari herferð hafi tekist að nýta sérstöðu Íslands á skapandi hátt, vekja athygli á áfangastaðnum og styrkja stöðu Icelandair á mikilvægustu mörkuðum félagsins.
„Það sem gleður mig sérstaklega er að hugmyndin heldur áfram að þróast og skapa ný tækifæri, eins og leitin að versta ljósmyndaranum sýndi á þessu ári. Þessi viðurkenning er frábær staðfesting á því hvað hægt er að áorka þegar öflugt teymi fær svigrúm til að þróa góðar hugmyndir og fylgja þeim eftir,“ er enn fremur haft eftir Gísla.
Global SABRE-verðlaunin bætast við fjölda alþjóðlegra viðurkenninga sem Iceland: The Real Unreal hefur hlotið fyrir skapandi markaðssamskipti og almannatengsl. Þar á meðal eru Clio Awards, Shorty Awards, The Drum Awards og Platinum SABRE Awards fyrir bestu herferð Evrópu. Þá hefur herferðin einnig hlotið tilnefningar til annarra alþjóðlegra verðlauna, meðal annars Cannes Lions og núna nýjast til Effie Awards sem afhent verða í byrjun desember.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗