Liverpool ætlar að bjóða yfir 7 milljarða

Lamine Camara er eftirsóttur.

Lamine Camara er eftirsóttur. AFP/Clement Mahoudeau

Enska knattspyrnufélagið Liverpool ætlar að bjóða yfir 50 milljónir evra í senegalska miðjumanninn Lamine Camara. 

Tutto Mercato segir frá en Camara er 22 ára gamall og spilar með Mónakó í Frakklandi. 

Chelsea reyndi að kaupa leikmanninn undir blálok sumargluggans en félagaskiptin fóru ekki í gegn.

Liverpool vill styrkja miðsvæði sitt en Camara er algjör lykilmaður hjá Mónakó og á þrátt fyrir ungan aldur 47 landsleiki að baki fyrir Senegal þar sem hann hefur skorað sjö mörk. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅