Liverpool ætlar að bjóða yfir 7 milljarða
Enska knattspyrnufélagið Liverpool ætlar að bjóða yfir 50 milljónir evra í senegalska miðjumanninn Lamine Camara.
Tutto Mercato segir frá en Camara er 22 ára gamall og spilar með Mónakó í Frakklandi.
Chelsea reyndi að kaupa leikmanninn undir blálok sumargluggans en félagaskiptin fóru ekki í gegn.
Liverpool vill styrkja miðsvæði sitt en Camara er algjör lykilmaður hjá Mónakó og á þrátt fyrir ungan aldur 47 landsleiki að baki fyrir Senegal þar sem hann hefur skorað sjö mörk.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗