Vísar ásökunum Britney á bug

Jamie Lynn Spears á viðburði tengdum Zoey 102 árið 2023.

Jamie Lynn Spears á viðburði tengdum Zoey 102 árið 2023. AFP/Charley Gallay

Jamie Lynn Spears er sögð taka nýjustu ásökunum systur sinnar, söngkonunnar Britney Spears, með ró. Heimildarmaður fjölmiðla vestanhafs segir hana og eiginmann hennar, Jamie Watson, ekki kannast við lýsingar Britney á samskiptum þeirra.

Britney birti harðorða færslu á Instagram um helgina þar sem hún sakaði systur sína um að hafa ekki leyft sér að halda á dóttur hennar, Ivey, í heimsókn til fjölskyldunnar í Louisiana árið 2020.

Heimildarmaðurinn hafnar þeirri frásögn og segir Britney hafa haldið á stúlkunni, sem sé hænd að frænku sinni.

Systurnar Britney og Jamie Lynn Spears á árum áður.

Systurnar Britney og Jamie Lynn Spears á árum áður. AFP

Kveðst ætla að finna sér nýja fjölskyldu

Í færslunni sagðist Britney ætla að finna sér nýja fjölskyldu og sakaði ættingja sína um að hafa farið á bak við sig. Hún sagði þá hafa látið sér líða eins og þræli og að hún hefði ekki gert annað en að vinna fyrir föður sinn, Jamie Spears.

Hann fór með forræði yfir persónulegum og fjárhagslegum málefnum hennar um árabil, en því fyrirkomulagi var aflétt í nóvember 2021 eftir þrettán ár.

Britney beindi einnig spjótum sínum að fyrrverandi eiginmanni sínum, Kevin Federline, og fullyrti að hann hefði ekki leyft henni að nota salernið á heimili sínu þegar hún sótti syni þeirra.

Frá því að Britney fékk sjálfræði á ný hefur hún ítrekað sakað fjölskyldu sína um að hafa stjórnað sér og hagnast á velgengni hennar. Faðir hennar hefur hafnað ásökunum um misbeitingu valds og sagt hagsmuni hennar ávallt hafa ráðið för. Jamie Lynn hefur sömuleiðis neitað að hafa átt þátt í forræðisfyrirkomulaginu og Federline hafnað því að hafa vísvitandi gert á hlut Britney.

Fulltrúar þeirra höfðu ekki svarað fyrirspurnum Page Six um nýjustu ásakanirnar þegar frétt miðilsins birtist.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅