Bremnes Seashore prófar MarWall

Sjókvíar Bremnes Seashore á Gissøy í Noregi.

Sjókvíar Bremnes Seashore á Gissøy í Noregi. Ljósmynd/Hampiðjan

Laxeldisfyrirtækið Bremnes Seashore hefur tekið í notkun MarWall-sjókvíabúnað ELDIs á Gissøy í Bømlo í Noregi.

„Kerfið hefur verið í rekstri í nokkrar vikur og fyrstu niðurstöður lofa góðu en þær benda til þess að kerfið geti dregið úr lúsasmiti og bætt aðstæður fisksins,“ segir á vef Hampiðjunnar sem á ELDI.

„Laxalús er ein stærsta áskorunin í laxeldi og á Gissøy er verið að prófa leið sem miðar að því að draga úr snertingu fisks við lúsalirfur áður en þörf verður á meðhöndlun.“

Fram kemur að MarWall sé hálflokuð kvíalausn frá ELDI þar sem djúp lúsapils myndi hindrun gegn yfirborðssjó þar sem mest hætta sé á laxalús.

Jafnframt er svo súrefnisbættum sjó dælt inn í kvína af meira dýpi.

„Þannig er stuðlað að stöðugum vatnsgæðum og góðum aðstæðum fyrir fiskinn.“

Bremnes Seashore er sagt hafa sett MarWall upp í einni kví á Gissøy meðan aðrar kvíar séu áfram reknar með hefðbundnum hætti.

„Þetta gerir fyrirtækinu kleift að bera saman líffræðilega þætti og rekstur kvía með og án kerfisins og fylgjast með áhrifunum yfir lengri tíma.“

Reynslan fyrstu vikurnar er sögð benda til lágs lúsastigs og lítillar dánartíðni í MarWall-kvínni, en áfram verður fylgst með framvindunni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅