Hollendingurinn skrifar undir

Brian Brobbey.

Brian Brobbey. AFP/Peter Powell

Hollenski framherjinn Brian Brobbey hefur skrifað undir nýjan samning við enska knattspyrnufélagið Sunderland. 

Nýi samningur Brobbeys gildir til sumarsins 2031 og verður hann því í Sunderland næstu fimm árin að öðru óbreyttu. 

Brobbey er 24 ára gamall og gekk í raðir Sunderland frá uppeldisfélaginu Ajax í fyrrasumar. 

Hann skoraði sjö mörk í 31 leik í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili þegar Sunderland komst í Evrópudeildina sem nýliði. 

Brobbey er kominn með þrjú mörk á yfirstandandi leiktíð en þau komu öll í 5:3-tapi Sunderland fyrir Manchester City. 

Framherjinn hefur þá skorað fjögur mörk í 17 landsleikjum með Hollandi.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅