Miklar gleðifréttir fyrir Arsenal
Frakkinn William Saliba er farinn að æfa á ný með Englandsmeisturum Arsenal í fótbolta.
Saliba hefur ekkert spilað á yfirstandandi tímabili en hann meiddist undir lok síðasta tímabils og lék meiddur á HM í Norður-Ameríku.
Hann hefur verið einn besti miðvörður heims undanfarin ár og er algjör lykilmaður í liði Arsenal. Leikmaðurinn ætti að vera tiltækur fljótlega og jafnvel í næstu tveimur leikjum, gegn Slavia Prag í Meistaradeildinni og Hull í ensku úrvalsdeildinni.
Enski landsliðsmaðurinn Ezri Konsa, sem var keyptur frá Aston Villa í sumar, hefur komið frábærlega inn í lið Arsenal í stað Saliba en Englandsmeistararnir eru í toppsæti deildarinnar með 24 stig.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗