Óuppfylltar þrár, svik, skömm og valdabarátta
Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur kom á óvart á dögunum þegar hún bauð í útgáfuboð í Pennanum/Eymundsson til að fagna sinni fyrstu skáldsögu Gerðu eins og ég segi. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem Áslaug þeytist fram á ritvöllinn því hún gaf út bókin Lífið er kynlíf – handbók kynfræðings um langtímasambönd, sem naut mikilla vinsælda.
Troðfullt var út úr dyrum í boðinu enda Áslaug vinsæl og skemmtileg. Á meðal gesta var Tinna Ólafsdóttir viðskiptakona og Karl Pétur Jónsson, Helga Árnadóttir í Tulipop og Ingvi Óskarsson lögmaður, Hörður Ægisson ritstjóri Innherja og Hildur Þórarinsdóttir lögmaður, Sigga Dögg kynfræðingur og rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir. Þar voru líka mæðginin Guðmundur Markús Sigurðsson og Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir hjá Íslandsstofu.
Bókin fjallar um Baldur og Nönnu sem virðast lifa hreint út sagt fullkomnu lífi. Hann er lögmaður og hún innanhússhönnuður en ekki er allt sem sýnist. Hvað gerist þegar vindar blása í ólgusjó hjónabandsins? Það er einmitt þá sem sambandsráðgjafinn Karitas kemur til sögunnar en hún hefur lifað skrautlegu ástarlífi og á mörg stutt sambönd að baki sem öllum lauk áður en ástin blossaði upp.
Undir fínpússuðu yfirborðinu leynist ýmislegt sem enginn hefur áhuga á að viðra neitt sérstaklega eins og óuppfylltar þrár, svik, skömm og valdabarátta. Hvar liggja mörkin milli ástar og losta?
Melkorka Svaran, Ásta Guðrún Jóhannsdóttir, Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir og Elínborg Einarsdóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Harpa Guðfinnsdóttir, Hrönn Indriðadóttir, Tinna Ólafsdóttir og Bryndís Grétarsdóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Ingibjörg Arnljótsdóttir, Hallmundur Albertsson, Davíð Oddsson og Hanna María Pálmadóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Ragna Kristmundsdóttir, Kolbrún Kristjánsdóttir og Valgerður Magnúsdóttir keyptu bækur og vildu fá þær áritaðar. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Magnea Ásta Pétursdóttir, María Ómarsdóttir, Áslaug Kristjánsdóttir og Hrefna Fanney Matthíasdóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
María Halldóra Jónsdóttir, Katrín Kristjánsdóttir, Áslaug Kristjánsdóttir og Elínborg Einarsdóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
María Ómarsdóttir, Magnea Ásta Pétursdóttir og Hrefna Fanney Matthíasdóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Örn Þórðarson, Dagur Gunnarsson, Sigtryggur Árnason, Ingþór Júlíusson og Hrönn Indradóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗






































