Hard Rock Cafe í Kaupmannahöfn lokar eftir 31 ár
Veitingastaði Hard Rock Cafe er að finna víða um heim, meðal annars í Reykjavík, London, New York, New Orleans og Tókýó. Nico Bhlr/Unsplash
Veitingastaðnum Hard Rock Cafe á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn hefur verið lokað fyrir fullt og allt eftir 31 árs starfsemi keðjunnar í borginni. Lokunin kom með skömmum fyrirvara og í kjölfar margra ára tapreksturs.
Danska dagblaðið Ekstra Bladet greinir frá lokuninni og birtir mynd af tilkynningu á dyrum veitingastaðarins. CPH Magazine greinir jafnframt frá því að keðjan hafi staðfest lokunina við danska miðilinn B.T.
Verslunin opin enn um sinn
Í tilkynningunni kemur fram að veitingastaðnum hafi verið lokað en að verslunin Rock Shop verði áfram opin til 8. nóvember. Þar eru meðal annars seldir hinir vel þekktu stuttermabolir með merki Hard Rock Cafe og nafni borgarinnar.
Keðjan sendir gestum sínum og borginni jafnframt kveðju.
„Við þökkum ykkur og Kaupmannahöfn, sem hefur alltaf tekið á móti okkur með hlýju og eldmóði,“ segir í tilkynningunni.
Samkvæmt umfjöllun Ekstra Bladet voru einnig skilaboð á dyrunum til gesta sem áttu að sækja viðburð á staðnum. Þar kom fram að viðburðurinn hefði verið færður annað.
Tapaði rúmlega 1,5 milljörðum á sex árum
Samkvæmt samantekt Ekstra Bladet á reikningum félagsins Hard Rock Cafe (Denmark) A/S nam tap ársins 2025 um 159 milljónum íslenskra króna, samanborið við um 328 milljóna króna tap árið áður.
Samanlagt tapaði félagið rúmlega 1,5 milljörðum íslenskra króna á árunum 2020 til 2025. Fjárhæðirnar eru umreiknaðar á viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands frá 2. nóvember.
Veltan dróst saman um 8,4%, úr um 735 milljónum íslenskra króna árið 2024 í um 673 milljónir árið 2025. Í lok síðasta árs var eigið fé félagsins neikvætt um 1,79 milljarða íslenskra króna.
Fyrstu árin við Tívolí
Hard Rock Cafe var opnaður í Kaupmannahöfn í júlí 1995. Fyrstu tæpu tuttugu árin var staðurinn við Tívolí, á horni Vesterbrogade og Bernstorffsgade.
Árið 2015 flutti hann á Ráðhústorgið og kom sér þar fyrir í 1.260 fermetra húsnæði á tveimur hæðum.
Staðurinn sameinaði bandarískan mat, sýningargripi tengda þekktu tónlistarfólki og verslun með varning merktan keðjunni. Nú er matarþjónustunni lokið en gestir hafa enn nokkra daga til að næla sér í minjagrip frá Hard Rock Cafe í Kaupmannahöfn.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗