Einn sá eftirsóttasti á leið til Arsenal?
Forráðamenn Englandsmeistara Arsenal hafa mikinn áhuga á franska knattspyrnumanninum Eli Junior Kroupi og gætu lagt fram tilboð í sóknarmanninn í janúar.
Það er enski miðillinn The Mirror sem greinir frá þessu en Kroupi, sem er tvítugur, er samningsbundinn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni.
Hann hefur verið sterklega orðaður við stærstu lið Englands undanfarna mánuði en hann gekk til liðs við Bournemouth frá Lorient í Frakklandi í febrúar á síðasta ári.
Alls á hann að baki 38 leiki fyrir Bournemouth þar sem hann hefur skorað 13 mörk og lagt upp eitt til viðbótar.
Hann er samningsbundinn Bournemouth til sumarsins 2030 og kostar í kringum 80 milljónir punda en Bayern München og París SG eru einnig sögð afar áhugasöm um leikmanninn.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗