Mikil pressa á Austurríkismanninum

Oliver Glasner.

Oliver Glasner. AFP/Darren Staples

Austurríski knattspyrnustjórinn Oliver Glasner er orðinn valtur í sessi hjá Nottingham Forest eftir dræmt gengi í síðustu leikjum liðsins.

Það er enski miðillinn The Telegraph sem greinir frá þessu en Glasner, sem er 52 ára gamall, tók við stjórnartaumunum hjá félaginu í sumar.

Nottingham Forest er sem stendur í 19. og næstneðsta sæti úrvalsdeildarinnar með einungis sex stig eftir fyrstu níu umferðirnar.

Liðið hefur tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum og gert eitt jafntefli en liðið vann síðast deildarleik þann 12. september gegn Aston Villa.

Eddie Howe, Thomas Frank og Sean Dyche hafa allir verið orðaðir við starfið, fari svo að Glasner verði sagt upp störfum.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅