Unnið úr 80 til 85 tonnum á dag

Í salthúsi Vísis þar sem er framleiddur hefðbundinn saltfiskur og léttsaltaður fiskur. Ljósmynd/SVN/Jón Steinar Sæmundsson

Unnið er úr 80 til 85 tonnum á dag í frystihúsi og salthúsi Vísis í Grindavík. Hráefni til vinnslunnar kemur að langmestu leyti frá skipum í Síldarvinnslusamstæðunni.

Á vef Síldarvinnslunnar er haft eftir Jóhanni Helgasyni, framleiðslu- og sölustjóra Vísis, að bæði frystihúsið og salthúsið séu fjölmennir tæknivæddir vinnustaðir.

„Í frystihúsinu starfa um 70 manns og í salthúsinu 50 til 60 manns. Í frystihúsinu eru framleiddir fiskbitar og er framleiðslan gjarnan um 500 bitar á mínútu,“ segir hann.

Mikil áhersla sé lögð á að fá sem nýjastan eða ferskastan fisk til framleiðslunnar.

„Rúmlega helmingur framleiðslunnar er fluttur út ferskur með flugi eða í gámum en hinn helmingurinn er frystur,“ segir Jóhann.

Ferski fiskurinn er mest seldur til Frakklands, Belgíu og Bandaríkjanna en frysti fiskurinn fer til Bretlands.

Þá segir hann að í salthúsinu fari fram hefðbundin framleiðsla á saltfiski, en þar sé einnig framleiddur léttsaltaður fiskur.

„Helstu markaðir okkar fyrir saltfiskinn eru Ítalía og Spánn en hann er einnig seldur í nokkrum mæli til Portúgals og Grikklands.“

Jóhann segir afla í vinnsluna koma frá línuskipunum Páli Jónssyni GK og Sighvati GK og einnig frá krókaaflamarksbátnum Fjölni GK.

„Þá fáum við afla frá Vestmannaeyjatogurunum Bergey VE og Vestmannaey VE og einnig frá Birtingi NK.“

Hann segir að það hafi gengið afar vel að fá fisk frá þessum skipum og því sé vinnslan bæði í frystihúsinu og salthúsinu samfelld og rekin með fullum afköstum.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅