Spá 2,8 milljarða afgangi hjá Reykjavíkurborg

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri kynnir fjárhagsáætlunina í dag.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri kynnir fjárhagsáætlunina í dag. mbl.is/Karítas

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár gerir ráð fyrir að afgangur verði af rekstri borgarsjóðs (A-hluti) upp á 2,8 milljarða. Þá gerir uppfærð útkomuspá borgarinnar fyrir þetta ár ráð fyrir að tap verði á rekstrinum upp á 6,6 milljarða.

Til næstu fimm ára er gert ráð fyrir að afgangur borgarsjóðs aukist og verði 6,9 milljarðar árið 2028, 9,5 milljarðar árið 2029 og 12,6 og 16,8 milljarðar árin 2030-2031.

Færri stöðugilid og niðurgreiðsla skulda

Gert er ráð fyrir að stöðugildi A-hluta verði 130 færri á næsta ári en þessu og að launakostnaður lækki um 2,3 milljarða. Þá er gert ráð fyrir að að ný lántaka verði lægri en afborganir lána frá árinu 2028 og að skuldaviðmið A-hluta lækki úr 86% niður í 73% til ársins 2031.

Eins og áður hefur komið fram verður miðað við að miðlæg stöðugildi borgarinnar verði að hámarki 7,5% af heildar stöðugildum, en það hlutfall var áður 8,4%. 

Á næsta ári er áætlað að tekjur aukist um 5,6% en rekstrarútgjöld um 3,7%.

Í kynningu borgarstjóra kom fram að verja ætti framlínustörf og grunnþjónustu, en að fara eigi í rýni á eignasafni borgarinnar, veikindahlutföllum og innkaupum.

Þá er boðað að nýir leikskólar verði byggðir upp í samstarfi við einkaaðila.

Afgangur í síðustu áætlun varð að 6,6 milljarða halla

Heildarfjárfesting A-hluta er áætluð 23,6 milljarðar árið 2027 og gert er ráð fyrir að stofnframlög til byggingar og kaupa á almennum íbúðum og til B-hluta fyrirtækja og hlutdeildarfélaga nemi 2,6 milljörðum króna.

Þetta er fyrsta fjárhagsáætlun nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks. Fjárhagsáætlunin fyrri meirihluta sem kynnt var í fyrra gerði ráð fyrir 3,4 milljarða afgangi af A-hluta borgarinnar. Í árshlutareikningi fyrir fyrri hluta ársins var staðan hins vegar orðin nokkuð verri og var halli af rekstrinum upp á 3,2 milljarða og er gert ráð fyrir að hallinn verði 6,6 milljarðar fyrir allt árið.

Ef sú fjármálaáætlun sem nú er kynnt gengur eftir verður um 9,4 milljarða viðsnúning að ræða á næsta ári frá uppfærðri útkomuspá fyrir þetta ári.

Minni tekjur og aukin gjöld á þessu ári

Þegar afkomuspá þessa árs er borin saman við fyrri fjárhagsáætlun sést að nú er gert ráð fyrir 10 milljarða verri afkomu en boðað var í fyrra. Skýrist það af 1,6 milljarða minni tekjum, 4,2 milljarði í aukin rekstrargjöld, 2,3 milljörðum í auknar afskriftir og 1,0 milljörðum í meiri fjárfestingu.

Varðandi áætlaðan viðsnúning á næsta ári upp á 9,4 milljarða er áætlað að rúmur helmingur komi með lægri afskriftum og fjármagnsgjöldum. Lækka afskriftir um 2,2 milljarða (svipaða tölu og afskriftir hækka í útkomuspá þessa árs) og fjármagnsgjöld um 2,7 milljarða.

Þegar horft er til bæði A- og B-hluta borgarinnar er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaðan á næsta ári verði jákvæð um 12,9 milljarða 

Fyrir þetta ár er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A- og B-hluta verði neikvæð um 3,4 milljarða, en afkoma B-hluta, sem meðal annars felur í sér Félagsbústaði og Orkuveituna, skilar jákvæðri afkomu um 3 milljarða.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅