Harry og Meghan flytja

Veröld/Fólk | mbl | 3.11.2026 | 11:15 | Uppfært 13:13

Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja eru enn að koma sér fyrir í Bretlandi. AFP

Harry Bretaprins og eiginkona hans, Meghan hertogaynja af Sussex, eru sögð vera fytja á milli húsa í Bretlandi. Harry og Meghan fluttu aftur til Bretlands í ágúst og hafa búið á heimili vinar Harry.

Í stað þess að setjast að í London ákváðu Harry og Meghan að setjast að í enskri sveit sem nefndist Cotswolds. Þau fengu lánað hús að því fram kemur á vef Daily Mail. Fjölskyldan er nú flutt í nýtt hús á landareigninni. Áður bjuggu þau í aðalhúsinu en hafa flutt í annað hús á landareigninni. 

Húsin og landareignin eru í eigu ríks manns sem er vinur Harrys. Þeir félagar hafa unnið saman að góðgerðarverkefnum fyrir hermenn. Vinurinn er sagður vera ánægður með að hjónin og börnin þeirra tvö dvelji áfram á landareign hans. 

Fjölskyldan keypti því ekki nýtt hús í Englandi. Þau eiga enn fokdýrt hús í Kaliforníu í Bandaríkjunum sem þau keyptu stuttu eftir að þau fluttu þangað fyrir nokkrum árum. 

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅