Verður næsti knattspyrnustjóri West Ham

Scott Parker.

Scott Parker. AFP/Paul Ellis

Enski knattspyrnustjórinn Scott Parker er að taka við stjórnartaumunum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham.

Það er enski miðillinn The Guardian sem greinir frá þessu en Parker, sem er 46 ára gamall, stýrði síðast Burnley.

Parker tekur við liðinu af Nuno Espírito Santo sem var sagt upp störfum í morgun eftir tvö töp í röð í ensku B-deildinni.

Paker hefur stýrt Fulham, Bournemouth, Club Brugge og Burnley á þjálfaraferlinum en hann þekkir vel til hjá West Ham eftir að hafa leikið með liðinu á árunum 2007 til 2011.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅