Áfall fyrir Liverpool
Hollenski knattspyrnumaðurinn Ryan Gravenberch verður ekki með Liverpool á morgun þegar liðið heimsækir Fenerbahce í 4. umferð Meistaradeildarinnar.
Það er The Athletic sem greinir frá þessu en Gravenberch, sem er 24 ára gamall, er að glíma við meiðsli í fæti og er óvíst hversu lengi hann verður frá keppni.
Hann var á meðal varamanna þegar Liverpool tapaði fyrir Arsenal, 1:0, í 9. umferð úrvalsdeildarinnar á Anfield á sunnudaginn var.
Liverpool hefur farið afar vel af stað í Meistaradeildinni á tímabilinu og er með níu stig eða fullt hús stiga í 3. sæti deildarinnar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗