Öllum stöðum KFC og Taco Bell í Púertó Ríkó lokað

KFC og Taco Bell eiga áratuga sögu í Púertó Ríkó en nú hafa báðar keðjurnar lokað öllum stöðum sínum á eyjunni tímabundið. Samsett mynd/Eric Ardito/Spencer Scott/Unsplash

Öllum veitingastöðum skyndibitakeðjanna KFC og Taco Bell í Púertó Ríkó hefur verið lokað tímabundið eftir að móðurfélag þeirra, Yum! Brands, sleit samstarfi við sérleyfishafann Encanto Restaurants. Unnið er að því að finna nýjan rekstraraðila svo hægt verði að opna staðina á ný.

Frá þessu greinir AP-fréttaveitan, en tilkynnt var um lokunina mánudaginn 2. nóvember.

Segja reksturinn ekki uppfylla kröfur

Í yfirlýsingu sem Yum! Brands sendi AP segir að það hafi verið erfið ákvörðun að slíta samstarfinu við Encanto Restaurants. Fyrirtækið geti hins vegar ekki lengur rekið staðina með þeim hætti sem kröfur móðurfélagsins kveði á um.

„Við erum áfram staðráðin í að þjóna Púertó Ríkó og vinnum eins hratt og mögulegt er að því að geta tekið aftur á móti viðskiptavinum á veitingastöðum okkar,“ segir í yfirlýsingunni.

Báðar keðjurnar birtu einnig stuttar tilkynningar um að leitað væri að nýjum sérleyfishafa.

„Við vonumst til að geta þjónað ykkur aftur mjög fljótlega,“ skrifaði KFC Puerto Rico á Instagram.

Encanto Restaurants hafði ekki svarað beiðni AP um viðbrögð þegar fréttin var birt.

KFC á eyjunni frá 1967

Keðjurnar eiga langa sögu í Púertó Ríkó. Fyrsti staður KFC á eyjunni var opnaður árið 1967 og Taco Bell hefur verið starfrækt þar frá árinu 1985.

Encanto Restaurants rekur einnig veitingastaði undir merkjum Pizza Hut og IHOP. Samanlagt er fyrirtækið með 180 veitingastaði á eyjunni og yfir 3.000 starfsmenn, samkvæmt AP.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅