Hægt hefur á niðurbroti Kolbeinseyjar

TF-SIF flaug nýverið yfir Kolbeinsey og áhöfnin tók myndir til að meta niðurbrot eyjarinnar. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Hægt hefur á niðurbroti Kolbeinseyjar að því er merkja má af myndum úr nýlegu eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar.

Í færslu Landhelgisgæslunnar á samfélagsmiðlum segir að undanfarin ár hafi reglulega verið flogið yfir Kolbeinsey til að fylgjast með niðurbroti eyjarinnar.

Kolbeinsey er 74 kílómetra norður af Grímsey, en greint er frá nýlegu yfirflugi og myndatöku áhafnar eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF.

„Fyrir um 15 árum var jafnvel óttast að Kolbeinsey yrði með öllu horfin árið 2020. Eyjan stendur þó enn upp úr sjó og minna virðist hafa gengið á hana að undanförnu en áður,“ segir í færslu Landhelgisgæslunnar.

„Berggrunnur hennar er afar gljúpur og hafís vinnur mikið á henni þau ár sem hann nær að umlykja eyjuna.“

Þá kemur fram að Kolbeinsey hafi gegnt mikilvægu hlutverki í deilum um landhelgi og landgrunnsréttindi.

Kolbeinsey séð úr lofti í nýlegu eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar.

Kolbeinsey séð úr lofti í nýlegu eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

„Árið 1989 steyptu áhöfn varðskipsins Óðins og starfsmenn Vita- og hafnamálastofnunar þyrlupall á eynni, en síðan hefur hún minnkað verulega.“

Fram kemur að eftirlit með eyjunni haldi áfram en hún hafi glatað mikilvægi sínu að mestu eftir að samið var um miðlínuna milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Jan Mayen hins vegar.

Landhelgisgæslan komi þó til með að halda áfram að fylgjast með ástandi eyjarinnar.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅