Getur munað allt að 22.475 krónum
Allt að 22.475 krónum munar á verði umfelgunar fólksbíla hjá dekkjaverkstæðum landsins, samkvæmt nýrri verðkönnun Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Mestur er munurinn þegar um er að ræða 22 tommu felgur, en þar kostar umfelgun frá 13.900 krónum upp í 36.375 krónur.
Dýrasta þjónustan er því 161,7% dýrari en sú ódýrasta í þessum flokki.
ASÍ kannaði verð hjá 29 fyrirtækjum á tíu stöðum víðs vegar um landið dagana 13. til 26. október. Alls voru tekin saman rúmlega þúsund skráð verð fyrir umfelgun og dekkjaskipti á mismunandi stærðum bíla og felgna.
Sex þúsund krónum munar á 16 tommu felgum
Fyrir fólksbíla á 14 til 16 tommu felgum er lægsta verð á umfelgun 10.990 krónur hjá Fastparts í Hafnarfirði, en það hæsta 16.990 krónur hjá N1. Munurinn nemur 6.000 krónum, eða 54,6%.
Fyrir 17 tommu felgur er lægsta verðið 12.900 krónur hjá Bílaverkstæðinu No22 í Reykjavík, en hæsta verðið er 19.990 krónur hjá N1, Betridekk og Kletti.
Þegar kemur að stærri felgum er lægsta verðið í samanburðinum 13.900 krónur hjá Pitstop á Selfossi. Þar er sama verð skráð fyrir umfelgun fólksbíla óháð dekkjastærð.
Hæsta verð fyrir 20 tommu felgur er hins vegar 31.760 krónur hjá Dekkjahöllinni og fyrir 22 tommu felgur 36.375 krónur hjá MAX1 Bílavaktinni.
ASÍ bendir á að fyrir heimili með tvo fólksbíla á 16 tommu felgum geti munað 12.000 krónum á því hvort leitað sé til ódýrasta eða dýrasta þjónustuaðilans. Sé farið tvisvar á ári með báða bílana í umfelgun nemur munurinn 24.000 krónum, miðað við óbreytt verð.
Allt að tvöfaldur verðmunur hjá jepplingum
Talsverður munur er einnig á verði fyrir jepplinga og jeppa.
Umfelgun jepplings eða óbreytts jeppa á 16 tommu felgum kostar minnst 10.990 krónur hjá Fastparts, en mest 19.990 krónur hjá Betridekk. Þar munar 9.000 krónum, eða tæplega 82%.
Fyrir 20 tommu felgur er verðbilið enn meira. Lægsta verðið er 15.490 krónur hjá MN Bílaverkstæði, en það hæsta 31.760 krónur hjá Dekkjahöllinni. Munurinn nemur 105%.
Umfelgun breytts jeppa á 35 tommu dekkjum kostar að lágmarki 20.490 krónur hjá MN Bílaverkstæði, en hæsta skráða verðið er 29.990 krónur hjá N1 og Kletti.
Getur borgað sig að eiga tvo felguganga
Í könnuninni kemur einnig fram að töluvert getur sparast við að skipta um heil hjól í stað þess að láta umfelga dekkin í hvert sinn.
Þegar sumar- og vetrardekk eru á sérfelgum kostar hjólaskipti með jafnvægisstillingu á bilinu 9.990 til 12.490 krónur fyrir fólksbíla á 16 tommu felgum. Fyrir 17 tommu felgur er verðið á bilinu 10.490 til 14.490 krónur.
Hjá BL Hraðþjónustu, MN Bílaverkstæði og N1 eru hjólaskipti 5.000 til 7.000 krónum ódýrari en umfelgun fyrir þessar felgustærðir.
Miðað við tvenn skipti á ári getur sparnaðurinn því numið 10.000 til 14.000 krónum á hvern bíl.
ASÍ tekur þó fram að við mat á hagkvæmni tveggja felguganga þurfi einnig að reikna með kostnaði við kaup á aukafelgum, geymslu og viðhald.
Aukagjöld geta breytt niðurstöðunni
Í könnun ASÍ er miðað við skráð verð hjá fyrirtækjunum, án skilyrtra afslátta. Þannig veitir Dekkjahöllin meðal annars 12% afslátt ef keypt eru dekk og MAX1 veitir 15% afslátt af umfelgun við kaup á fjórum dekkjum.
Þá getur skipt máli hvort um er að ræða ál- eða stálfelgur og hvort aukagjöld séu innheimt fyrir lágprófíldekk eða stærri bíla.
Jafnvægisstilling er innifalin í öllum verðum sem borin eru saman fyrir umfelgun. ASÍ leggur þó ekki mat á gæði þjónustunnar.
Sambandið hvetur neytendur til að gefa upp bílaflokk, hjólastærð og gerð felgna við bókun og fá staðfest heildarverð áður en þjónustan er veitt.
Hér má nálgast heildarsamanburð ASÍ á verði umfelgunar og dekkjaskipta.
内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗