„Ég svaf ekki í fimm daga“
CrossFit-stjarnan Annie Mist Þórisdóttir hefur upplifað ótrúlega sigra á íþróttasviðinu en þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn tók lífið óvænta stefnu. Í hlaðvarpinu Marta María býður heim segir hún frá erfiðri fæðingu, fæðingarþunglyndi og því hvernig móðurhlutverkið breytti sýn hennar á lífið.
Annie Mist Þórisdóttir, sem tvívegis hefur verið krýnd hraustasta kona heims, er þriggja barna móðir og rekur í dag líkamsræktarappið Empower by dóttir ásamt eiginmanni sínum, Frederik og Katrínu Tönju. Þótt hún hafi lengi verið þekkt fyrir einstakan líkamlegan og andlegan styrk reyndi verulega á hana þegar hún eignaðist dóttur sína, Freyju.
Í viðtalinu rifjar Annie Mist upp hvernig hún hafði lengi frestað barneignum vegna íþróttaferilsins. Hún hafði helgað CrossFit líf sitt og átti erfitt með að ímynda sér hver hún væri án keppninnar.
Það var svo í fjölskyldufríi í Orlando árið 2019 sem hún áttaði sig á því að hún væri tilbúin að verða móðir. Þegar ung bróðurdóttir hennar faðmaði hana og sagðist elska hana vissi Annie Mist að hún vildi ekki bíða lengur.
„Ég verð að eignast börn núna,“ hugsaði hún og sagði Frederik að þau yrðu að fara að huga að barneignum.
Missti rúma tvo lítra af blóði
Meðgangan gekk einstaklega vel en fæðingin reyndist allt önnur en Annie Mist hafði ímyndað sér. Hún var með samdrætti í þrjá daga og þegar kom að sjálfri fæðingunni gekk illa að koma barninu í heiminn.
Dóttirin lá skakkt og reynt var ítrekað að snúa henni. Um tíma var Annie Mist undirbúin fyrir bráðakeisaraskurð en að lokum tókst að koma Freyju í heiminn með hjálp sogklukku.
„Ég missi einhverja rúma tvo lítra af blóði. Ég rifna í allar áttir,“ segir Annie Mist þegar hún lýsir fæðingunni.
Í kjölfarið tók við löng aðgerð þar sem þurfti að sauma hana saman. Freyja þurfti jafnframt að fara á barnadeild til eftirlits og Annie var afar illa á sig komin.
„Ég var bara í rugli“
Vegna heimsfaraldursins máttu aðstandendur ekki heimsækja þau á sjúkrahúsið. Annie Mist var örmagna, gat vart gengið sjálf og hafði miklar áhyggjur af dóttur sinni.
Læknir ræddi við hana um hversu alvarlegir áverkarnir hefðu verið og að óvíst væri hvort hún myndi ná sér að fullu.
Annie Mist segir að hún hafi á þessum tímapunkti ekki haft neinar áhyggjur af því hvort hún gæti nokkurn tímann keppt aftur. Allar hugsanir hennar snerust um Freyju.
Hún ákvað jafnframt að þiggja ekki blóðgjöf, ákvörðun sem hún sér eftir í dag.
„Ég hefði alltaf átt að taka blóðið,“ segir hún.
Álagið og svefnleysið höfðu síðan mikil áhrif á andlega líðan hennar.
„Ég svaf ekki í fimm daga sem að þýðir að ég enda í fæðingarþunglyndi,“ segir Annie Mist.
Hún lýsir því hvernig gleðin hvarf skyndilega úr lífinu og hvernig hún upplifði jafnvel hversdagslega hluti sem tilgangslausa.
„Af hverju er fólk að leika í sjónvarpsþáttum? Við eigum öll eftir að deyja,“ segist hún hafa hugsað á þessum tíma.
Það var ekki fyrr en henni tókst að sofa í nokkrar klukkustundir samfleytt sem hún fór að finna fyrir breytingu.
„Þá byrja ég að sjá lit aftur,“ segir hún.
Annie Mist telur að það hafi hjálpað henni mikið að geta talað opinskátt um líðan sína. Smám saman hafi henni tekist að vinna sig út úr erfiðleikunum með stuðningi fjölskyldunnar.
Fann nýjan tilgang í lífinu
Þrátt fyrir erfiða líkamlega og andlega reynslu ákvað Annie Mist að setja sér lítil markmið í líkamsræktinni. Hún byrjaði á því að taka þátt í CrossFit Open og hélt síðan áfram að æfa.
Áður en hún vissi af var hún komin aftur á heimsleikana í CrossFit og endaði á verðlaunapalli, nokkuð sem hún hafði alls ekki gert ráð fyrir eftir fæðinguna.
Í dag eru Annie Mist og Frederik orðin þriggja barna foreldrar. Hún segir lífið gjörbreytt og þótt hún æfi enn reglulega sé tilgangurinn annar en áður.
„Öll mín fullorðinsár hef ég verið atvinnumaður í CrossFit en núna breyttist það og ég varð allt í einu mamma og það er bara stærra hlutverk en ég hef nokkurn tímann haft,“ segir Annie Mist.
Hún hefur jafnframt fundið nýja ástríðu í því að hjálpa öðrum konum að öðlast styrk og bæta heilsuna í gegnum Empower by dóttir.
Þegar Marta María spyr hana í lok þáttar hvað hún hefði viljað vita þegar hún var tvítug stendur Annie Mist ekki á svörum. Hún hefði viljað læra fyrr að láta álit annarra ekki hafa áhrif á sjálfsmynd sína.
„Þó svo að einhverjum finnist eitthvað um líkama minn eða eitthvað um það sem ég er að gera vera kjánalegt þá breytir það ekki mínu áliti á líkamanum mínum eða því sem ég er að gera.“
Hægt er að hlusta á viðtalið við Annie Mist Þórisdóttur á hlaðvarpsvef mbl.is og í helstu streymisveitum eins og Apple Podcast og Spotify.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/91/1689155.jpg)