Búlgaría fellur af áhættulista Seðlabankans

Seðlabankinn vekur athygli á að tilkynningarskyldir aðilar skuli framkvæma aukna áreiðanleikakönnun hyggist þeir eiga viðskipti við aðila sem tengjast ríkjum á listanum. mbl.is/Karítas

Búlgaría hefur verið tekin af lista Seðlabanka Íslands yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð í skilningi laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Engin ríki bætast við listann að þessu sinni.

Fjármálaeftirlit Seðlabankans greindi frá uppfærslunni í tilkynningu í gær. Breytingin kemur í kjölfar þess að Búlgaría var tekin af lista Alþjóðlega fjármálaaðgerðahópsins, FATF, yfir áhættusöm ríki vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka.

Krefjast aukinnar áreiðanleikakönnunar

Seðlabankinn vekur athygli á að tilkynningarskyldir aðilar skuli framkvæma aukna áreiðanleikakönnun hyggist þeir eiga viðskipti við aðila sem tengjast ríkjum á listanum. Um þetta gilda ákvæði laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Listi Seðlabankans tekur annars vegar til ríkja sem FATF hefur tilgreint sem áhættusöm og eftir atvikum ósamvinnuþýð og hins vegar ríkja sem Evrópusambandið hefur tilgreint sem áhættusöm þriðju lönd.

Meðal verkefna FATF er að setja tilmæli um aðgerðir gegn peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka og fjármögnun gereyðingarvopna. Samtökin tilgreina jafnframt ríki sem teljast áhættusöm og eftir atvikum ósamvinnuþýð.

Listinn eftir breytinguna

Eftirfarandi ríki og landsvæði eru á lista Seðlabankans eftir uppfærsluna 2. nóvember:

  • Afganistan
  • Alsír
  • Alþýðulýðveldið Kórea
  • Angóla
  • Bosnía og Hersegóvína
  • Bólivía
  • Bresku Jómfrúaeyjar
  • Búrkína Fasó
  • Fílabeinsströndin
  • Haítí
  • Írak
  • Íran
  • Jemen
  • Kamerún
  • Kenía
  • Kúveit
  • Laos
  • Líbanon
  • Lýðstjórnarlýðveldið Kongó
  • Malí
  • Mjanmar/Búrma
  • Mónakó
  • Mósambík
  • Namibía
  • Nepal
  • Nígería
  • Papúa Nýja-Gínea
  • Suður-Afríka
  • Suður-Súdan
  • Sýrland
  • Tansanía
  • Trínidad og Tóbagó
  • Vanúatú
  • Venesúela
  • Víetnam

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅