Eldsneytiskostnaðurinn hækkar um 272 milljarða
Lufthansa, sem rekur meðal annars flugfélögin Swiss, Brussels Airlines og Eurowings, lækkaði jafnframt efri mörk spár sinnar um hagnað af kjarnastarfsemi á árinu. AFP
Þýska flugfélagasamstæðan Lufthansa gerir ráð fyrir að eldsneytiskostnaður hennar verði tveimur milljörðum evra, jafnvirði 272,4 milljarða króna, meiri á þessu ári en í fyrra. Stríðið í Íran heldur orkuverði á heimsmarkaði háu.
Þetta kemur fram í uppgjöri samstæðunnar fyrir þriðja ársfjórðung, sem birt var í dag. Áætlað er að eldsneytiskostnaður ársins í heild nemi 9,3 milljörðum evra, eða um 1.267 milljörðum króna.
Það er 600 milljónum evra, eða 81,7 milljörðum króna, meira en samstæðan gerði ráð fyrir fyrir fáeinum mánuðum, en stríð Bandaríkjanna gegn Íran dregst á langinn.
Lækkar efri mörk afkomuspár
Lufthansa, sem rekur meðal annars flugfélögin Swiss, Brussels Airlines og Eurowings, lækkaði jafnframt efri mörk spár sinnar um hagnað af kjarnastarfsemi á árinu.
Samstæðan gerir nú ráð fyrir að hann verði á bilinu 1,7 til 2 milljarðar evra, jafnvirði 231,5 til 272,4 milljarða króna. Áður var spáð 1,7 til 2,2 milljörðum evra, eða 231,5 til 299,6 milljörðum króna.
Þrátt fyrir heldur dekkri horfur jókst hagnaður eftir skatta um 30% á þriðja ársfjórðungi frá sama tímabili í fyrra og var meiri en spár gerðu ráð fyrir. Hann nam 1,26 milljörðum evra, jafnvirði 171,6 milljarða króna.
Að sögn samstæðunnar var mikil eftirspurn eftir flugmiðum í dýrari farrýmum til Asíu og Norður-Ameríku.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗