Sagt upp störfum í Lundúnum
Portúgalska knattspyrnustjóranum Nuno Espírito Santo hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara enska B-deildarfélagsins West Ham.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Santo, sem er 52 ára gamall, tók við þjálfun liðsins í september á síðasta ári.
West Ham hafnaði í 18. sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og féll í B-deildina en liðið er með 22 stig í áttunda sæti deildarinnar eftir fyrstu 13 umferðirnar, sex stigum minna en topplið Middlesbrough.
West Ham hefur tapað tveimur leikjum í röð, gegn Southampton og WBA, og reyndist það kornið sem fyllti mælinn.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗