Landeldið formúla sem virkar

Hér má sjá teikningu EFLU af hluta laxeldisstöðvar Laxeyjar í Vestmannaeyjum. Teikning/EFLA

Hönnun landeldisstöðva gæti orðið að útflutningsvöru, að sögn Smára Guðfinnssonar, fyrirliða vélateymis EFLU. Fyrirtækið er með þeim umsvifamestu í heimi í hönnun stórra landeldisstöðva.

Hann segir það hjálpa til að EFLA sé stærsta verkfræðistofa Íslands og búi því að hópi sérfræðinga með breiða þekkingu.

Á sama tíma sé íslenski verkfræðimarkaðurinn svo lítill og fjölbreyttur að sérfræðingarnir séu vanir því að vinna þvert á aðskilin sérsvið og geti yfirfært reynslu sína úr alls konar iðnaði yfir á þarfir landeldisins.

Gæðavara úr landeldinu

Í nýlegri umfjöllun Lagareldis 200 mílna um aðkomu EFLU að uppbyggingu eldisverkefna segir að á þær stöðvar sem EFLA hefur hannað sé komin nægilega mikil reynsla til að sýna fram á virkni hönnunarinnar og að hægt sé að stækka laxeldið eftir sömu formúlu.

Núna þurfi aðeins að gæta þess að byggja greinina upp með ábyrgum hætti.

Smári segir að ekki sé annað að sjá af þeim landeldisverkefnum sem komin eru vel af stað en að þar fari menn sér í engu óðslega og stígi eitt skref í einu.

Þá segir hann að íslenskur landeldislax sé afbragðsgóð vara og síst lakari matur en villtur fiskur.

Smári Guðfinnsson

Smári Guðfinnsson mbl.is/Karítas


„Þetta er vara sem státar af mörgum styrkleikum og t.d. sýna tölur um afföll að það fer vel um laxinn í landeldinu og hann er laus við sjúkdóma og sníkjudýr svo að lyfjanotkun er sama sem engin,“ segir hann.

„Hvort sem við leggjum landnotkun, fóðurþörf eða kolefnisspor til grundvallar þá ber lax úr landeldi af í samanburði við aðra próteingjafa úr dýraríkinu og hráefnið er bæði heilnæmt og grænt.“

Hér eru aðstæður betri en víðast hvar

Smári slær þó þann varnagla við útflutning reynslunnar sem hér hefur orðið til að á Íslandi séu aðstæður til landeldis einstaklega góðar á svæðum eins og suðvesturhorninu.

„Það eru ekki margir staðir í heiminum þar sem væri hægt að endurtaka leikinn,“ segir hann.

Landeldi kalli til dæmis á að auðvelt sé að ná sjó sem sé við rétt hitastig, auk þess sem mikið magn ferskvatns þurfi fyrir seiðaeldi.

„Ekki aðeins er sjórinn við Íslandsstrendur við kjörhitastig heldur er jarðsjórinn á suðvesturhluta landsins síaður af gljúpu hrauninu og nærri laus við allar örverur og kemur náttúrulega hreinn upp úr borholunum.“

Til samanburðar nefnir Smári að eldisfyrirtæki erlendis, þar sem sjávarhiti er hærri, hafi átt í töluverðu basli og þurft að kosta miklu til við að kæla sjóinn svo að eldislaxinum líði vel.

Allt viðtalið við Smára Guðfinnsson má lesa HÉR.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅