Ræddu úttekt áður en Hörður sagði upp

Gögnin staðfesta að ráðuneytið var upplýst um ágreininginn áður en Hörður sagði upp störfum. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/María Matthíasdóttir

Hugsanleg rekstrarúttekt fjármála- og efnahagsráðuneytisins á Landsvirkjun var til umræðu á fundi fulltrúa ráðuneytisins með Brynju Baldursdóttur stjórnarformanni fyrirtækisins og Berglindi Ásgeirsdóttur varaformanni 11. september síðastliðinn.

Á sama tíma ríkti alvarlegur ágreiningur milli stjórnar og Harðar Arnarsonar, þáverandi forstjóra Landsvirkjunar, sem sagði upp störfum síðar í mánuðinum.

Þetta kemur fram í gögnum ráðuneytisins sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Gögnin varpa jafnframt ljósi á misræmi milli skýringa Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra og yfirlýsingar stjórnar Landsvirkjunar um fundi sem haldnir voru án forstjórans.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅