Íslandsferð Kidman vekur enn athygli
Íslandsferð leikkonunnar Nicole Kidman vakti gríðarlega athygli í sumar, ekki bara hér heima heldur líka erlendis. Þrátt fyrir að margir mánuðir séu liðnir frá ferðalagi Kidman vekur ferðalag hennar enn athygli.
Hinn virti ferðavefur Travel and Leisure fjallaði á dögunum ítarlega um siglingu Kidman. Í greininni kemur í ljós að Kidman hafi stigið um borð í skemmtiferðaskipið í Hafnarfirði. Er tekið fram að Hafnafjörður sé aðeins í 30 mínútna akstursfjarlægð frá hinu heimsþekkta Bláa lóni og stutt sé í Gullna hringinn.
Frá Hafnarfirði var siglt til Grundarfjarðar þar sem hægt var að virða fyrir sér. Í nágrenninu er Vatnshellir en það vakti einmitt athygli að Kidman mætti óvænt í heimsókn í hellinn. Því næst var Ísafjörður heimsóttur og Akureyri var síðasti viðkomustaðurinn. Í greininni kemur fram að gamli bærinn á Akureyri sé sérstakalega sjarmerandi.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗