Unnur: „Við erum það sem við borðum“

Unnur Pálmarsdóttir hefur kennt og þjálfað almenning í yfir 35 ár og leggur áherslu á samspil matar, hreyfingar og vellíðanar. mbl.is/Karítas

Unnur Pálmarsdóttir, líkamsræktarkennari, einkaþjálfari og mannauðsráðgjafi, hefur lengi haft áhuga á samspili matar, hreyfingar og vellíðanar. Í eldhúsinu finnst henni sérstaklega skemmtilegt að prófa nýjar samsetningar og útbúa ferska drykki.

„Það hefur lengi verið áhugamál mitt að finna upp nýjar og spennandi uppskriftir að hollum, góðum og ferskum drykkjum sem allir geta nýtt sér. Það þarf að vera einfalt og fljótlegt að gera drykkina og ég hvet lesendur til að vera óhræddir við að breyta þeim og prófa sig áfram.“

Unni finnst skemmtilegt að prófa nýjar samsetningar og útbúa ferska drykki sem einfalt og fljótlegt er að gera. mbl.is/Karítas

Vinátta og félagsskapur

Hvað er að frétta af þér þessa dagana?

„Ég er nýkomin frá Kanarí með hópi af yndislegum konum úr ferðinni minni, „Heilsurækt huga, líkama og sálar“, sem gekk vonum framar.

Ég hef ástríðu fyrir því að skipuleggja góðar heilsuferðir í framtíðinni því ég tel framtíðina felast í því að bjóða upp á ferðir þar sem fólk getur ræktað líkama og sál. Ekki má gleyma félagsskapnum og vináttunni sem myndast í ferðunum.

Ég er svo heppin að starfa við það sem ég elska, en það er að kenna, fræða og þjálfa almenning í að rækta líkama og sál, styrkja sjálfstraustið og hlusta á líkamann,“ segir Unnur og bætir við að það gangi mjög vel í vinnunni og að alltaf sé nóg að gera.

Þrjátíu ára kennsla í Bretlandi

„Ég er að fara til Bretlands að kenna á heilsu- og líkamsræktarráðstefnu og er mjög spennt að kenna þar aftur. Ég hef kennt í Bretlandi í um 30 ár, svo það er gaman að hitta góða vini og sjá það nýjasta í heimi heilsuræktar.

Ég kenni í Kötlu Fitness, rek hóptímakennaranám á Íslandi og er höfundur líkamsræktarkerfisins Fusion Pilates sem ég hef þróað síðan 2014. Mér finnst mikilvægt að bjóða upp á kennaranám og fræðslu fyrir þá sem vilja til dæmis breyta um starfsvettvang og þróa færni sína. Þess vegna hef ég þróað fjölbreytt kennaranám og er að hanna nýtt líkamsræktarkerfi sem heitir Infra Fitness Pilates. Svo er það að hvetja alla til að stunda heilsurækt allt árið um kring.“

Fótboltinn á hug sonarins allan

Hvað með persónulega lífið?

„Ég er heppin að eiga yndislegan mann og son og auðvitað hundinn okkar Carmen, svo allir dagar eru fullir af ævintýrum. Mér finnst það forréttindi að fylgjast með syni okkar þroskast og þróast og fylgja honum í fótboltanum sem á hug hans allan núna.“

Einfaldar uppskriftir fyrir alla

Hvaðan kemur áhugi þinn á mat og heilsu?

„Ég hef kennt og þjálfað almenning í yfir 35 ár. Það er einnig áhugamál mitt að finna upp nýjar og spennandi uppskriftir. Við erum það sem við borðum. Heilsan okkar er það mikilvægasta sem við eigum og nú til dags þurfum við að vera meðvituð um hvað við borðum. Mikilvægt er að uppskriftirnar séu einfaldar í samsetningu og henti öllum. Ég legg áherslu á að huga að heilsunni frá öllum hliðum og markmið mitt er að byggja upp og þjálfa bæði huga og sál.

Hamingjan kemur innan frá og ef við njótum lífsins verðum við sterkari, hamingjusamari og heilsuhraustari,“ segir Unnur.

„Ég er svo heppin að starfa við það sem ég elska,“ segir Unnur sem nýtur þess að kenna, fræða og þjálfa. mbl.is/Karítas

Minni streita og meiri útivera

Hvað ætlar þú að gera á nýju heilsuári?

„Ég ætla að hefja nýtt heilsuár af krafti og gleði og bjóða upp á heilsueflandi ferðir, meðal annars til Kanarí dagana 2.–12. janúar og 12.–19. mars. Ferðirnar bera heitið „Heilsurækt huga, líkama og sálar“.

Ég hef skipulagt heilsuferðir til Kanarí síðan 2019 þar sem markmiðið er að rækta líkama og sál, auka vellíðan, njóta þess að vera til og eignast góða vini í frábærum félagsskap.

Það er yndislegt að stunda hreyfingu utandyra í fallegu umhverfi, sérstaklega á þessu svæði sem er þekkt fyrir mikla veðursæld og yndislegt loftslag allt árið um kring. Ég legg áherslu á mikilvægi þess að læra aðferðir til að minnka streitu, njóta líðandi stundar, auka jákvæðni og rækta sjálfið. Einnig að slökkva á farsímunum og minnka samfélagsmiðlanotkun.

Það er glæsilegur golfvöllur við hliðina á hótelinu og öllum er velkomið að nýta ferðina einnig til að spila golf. Við endum ferðina á lokahófi þar sem við borðum saman og fögnum líðandi stund. Ég skipulegg ferðina í samstarfi við Golfskálann og finna má meira um hana á heimasíðunni minni, fusion.is,“ segir Unnur að lokum og gefur okkur uppskriftir að hollum pönnukökum og tveimur glæsilegum hollustudrykkjum.

Grænn drykkur Unnar með eplum og engifer

Spínat gefur drykknum fallegan grænan lit en epli, sítróna og ferskt engifer sjá um bragðið. mbl.is/Karítas

  • Ferskt spínat að vild
  • 1 grænt epli
  • Sítrónusafi eftir smekk
  • 3 cm engiferbútur
  • 1–2 msk. kollagenduft
  • Klakar til að bera fram með

Aðferð

  1. Skerið eplið og engiferið í bita.
  2. Setjið spínat, epli, sítrónusafa, engifer og kollagenduft í blandara og blandið vel saman.
  3. Hellið í glas með klökum og berið fram.

Rauðrófudrykkur Unnar með appelsínu og gulrótum

Litríkur drykkur með rauðrófu, appelsínu, gulrótum, agúrku og selleríi. Chiafræjum er stráð yfir í lokin. mbl.is/Karítas

  • 1 rauðrófa
  • 1 appelsína
  • 2–3 gulrætur
  • ½ agúrka
  • 1–2 sellerístönglar
  • 1 handfylli af klökum
  • Chiafræ að vild

Aðferð

  1. Skolið grænmetið, afhýðið appelsínuna og skerið hráefnin í bita.
  2. Setjið rauðrófu, appelsínu, gulrætur, agúrku, sellerí og klaka í blandara.
  3. Blandið á hæsta hraða í 30–60 sekúndur.
  4. Hellið í glös og stráið chiafræjum yfir eftir smekk.

Prótínpönnukökur Unnar

Prótínpönnukökur Unnar innihalda meðal annars hafra, banana og mysuprótínduft og eru bornar fram með ávöxtum og öðru meðlæti eftir smekk. mbl.is/Karítas

  • 3 egg
  • 75 g hafrar
  • 1 banani
  • 10 g mysuprótínduft með vanillu- eða bananabragði eða án bragðefna
  • ½ dl fjörmjólk eða möndlumjólk
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. kanill, að vild
  • Olía til steikingar

Meðlæti eftir smekk

  • Grísk jógúrt
  • Banani, skorinn í sneiðar
  • Bláber, hindber og jarðarber
  • Hlynsíróp
  • Hnetusmjör
  • Kanill

Aðferð

  1. Setjið egg, hafra, prótínduft, banana, mjólk, lyftiduft og kanil í blandara. Blandið í 1–2 mínútur þar til blandan er slétt og kekkjalaus. Gangið úr skugga um að hafrarnir hafi maukast vel. Ef ekki, blandið í eina mínútu til viðbótar.
  2. Hitið smá olíu á pönnu. Hellið eða ausið deigi á pönnuna fyrir 2–3 pönnukökur og hafið bil á milli þeirra svo þær hafi pláss til að breiðast út.
  3. Steikið í 1–2 mínútur þar til loftbólur myndast á yfirborðinu og botninn er orðinn gullinbrúnn. Snúið pönnukökunum við og steikið í eina mínútu til viðbótar þar til þær eru gegnsteiktar.
  4. Haldið pönnukökunum heitum í ofni meðan afgangurinn af deiginu er steiktur.
  5. Berið fram með vænni skeið af grískri jógúrt, bananasneiðum, berjum og hlynsírópi. Bætið við hnetusmjöri og kanil eftir smekk.

Geymsla

Pönnukökurnar má frysta í loftþéttu íláti eða poka í allt að þrjá mánuði. Þær má síðan þíða og hita í örbylgjuofni eða brauðrist.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅