Hættur með ungu kærustunni

Bill Belichick ásamt Jordon Hudson. Nú eru þau hætt saman en eru enn góðir vinir. Skjáskot/Instagram

Bill Belichick, fyrrverandi þjálfari ameríska fótboltaliðsins New England Patriots, er hættur með hinni ungu Jordan Hudson. Samband Belichick og Hudson vakti gríðarlega athygli þar sem tæp 50 ár eru á milli þeirra. 

Belichick er 74 ára en Hudson 25 ára. Belichick sem er goðsögn í amerískum fótbolta og einstaklega sigursæll sem þjálfari. Hann féll fyrir hinni ungu Hudson þegar þau hittust í flugi í febrúar árið 2021. Árið 2022 fóru þau að stinga saman nefjum. 

Fram kemur á vef TMZ að parið hafi hætt saman í fyrra án þess að fólk hafi frétt af því. Þau hafa mætt saman á viðburði allt árið án þess að láta á sambandsslitunum bera. Þau eru hins vegar vinir og starfa enn saman sem viðskiptafélagar. Jordan er byrjuð að fara á stefnumót en ekki kemur fram hversu alvarlegt það er. 

Goðsögn

Belichick er goðsögn í NFL-deildinni enda komst Patriots í níu úrslitaleiki um meistaratitilinn undir hans stjórn og vann sex þeirra, alla þegar leikstjórnandinn Tom Brady var upp á sitt besta. Enginn þjálfari hefur unnið meistaratitilinn oftar og raunar hefur Belichick unnið hann alls átta sinnum, einnig tvisvar sem aðstoðarþjálfari New York Giants árin 1986 og 1990.

Bill Belichick er þaulreyndur þjálfari.

Bill Belichick er þaulreyndur þjálfari. AFP/Maddie Meyer

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅