Íslenskt ofurpar keypti 282 milljóna einbýli
Einstakt einbýlishús var auglýst til sölu fyrr á árinu. Um er að ræða 377 fm fasteign sem reist var 1969. Húsið stendur á 1520 fm lóð sem er vel nýtt undir heitan pott og saunu-tunnu svo eitthvað sé nefnt. Rut Káradóttir innahússarkitekt hannaði efri hæð hússins og er þar glæsileg eldhúsinnrétting með tækjaskáp og góðri lýsingu. Húsið stendur við Hegranes í Garðabæ.
Nú hefur húsið verið selt á 282.000.000 kr.
Kaupendur eru Ellen Ragnars Sverrisdóttir fjármálaráðgjafi hjá Arion banka og Andri Björn Gunnarsson framkvæmdastjóri Vaxa. Þau keyptu húsið var Ingibjörgu Ásdísi Ragnarsdóttur framkvæmdastjóra sölu og þjónustu hjá VÍS og Ragnari Þórarni Ágústssyni bankamanni.
Ný ást!
Smartland greindi frá því í sumar að Ingibjörg Ásdís og Bjarni Guðjónsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins væru kærustupar.
Smartland óskar Ellen og Andra Birni til hamingju með húsið!
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

